Atvinnulíf

19 ára með sitt eigið umhverfisvæna framleiðslufyrirtæki

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Hulda F. Pálsdóttir.
Hulda F. Pálsdóttir. Vísir/Vilhelm

Hulda Fanný Pálsdóttir er 19 ára gömul og búsett í Garðabæ. Þrátt fyrir ungan aldur, er hún búin að stofna fyrirtæki sem heitir AKA og selur töskur sem hún hannar og framleiðir sjálf. Það sem gerir AKA töskurnar sérstakar er að þær eru unnar úr sætisbeltum og leðursætum úr bílum.

„Ég sé fyrir mér að ef eftirspurnin verður mikil þá myndi ég skipuleggja framleiðsluna í kringum það. En þróa síðan hugmyndina og framleiða töskur úr tilteknum bílum eins og til dæmis bílum sem hafa verið lengi í fjölskyldum og eru búnir með sinn líftíma. Þá væri hægt að senda inn beiðni um að fá sérhannaða tösku úr bílnum,“ segir Hulda.

Hugmyndin fæðist

Hulda útskrifast í vor úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ af hönnunar- og markaðsbraut.

„Ég hef mikinn áhuga á hönnun og þá helst fatahönnun og því sem tengist tísku,“ segir Hulda og bætir við: 

Í lokaáfanganum í hönnun var ég að vinna að nýsköpunarverkefni og fékk þá hugmynd að hanna töskur úr endurnýttum efnum. Því  fólk er farið að hugsa mun meira um það en áður að kaupa umhverfisvænar vörur.“

Að sögn Huldu tók þróunarferlið smá tíma en ferlið gekk þó vel fyrir sig.

„Mér datt í hug að hanna töskur með haldfangi úr sætisbeltum en vildi þó finna mér enn betri sérstöðu. Þá datt mér í hug að taskan sjálf gæti verið úr endurnýttum leðursætum úr bílum. Mér fannst skipta mjög miklu máli að taskan væri sérstök og öðruvísi,“ segir Hulda.

Hulda var að vinna í nýsköpunarverkefni í skólanum þegar að hún fékk hugmyndina að AKA töskunum.Vísir/Vilhelm

Í kjölfarið hafði Hulda samband við Netparta og spurðist fyrir um það hvort hún gæti fengið hráefni úr bílum þaðan. 

Það gekk upp og segist Hulda hafa fengið nánast allt hráefni frá Netpörtum.

Það voru leðursæti úr bílum og einnig sætisbelti. 

Ég byrjaði á því að hreinsa innan úr sætunum svampa og óþarfa sauma. En þegar að ég saumaði töskuna saman, passaði ég þó upp á að efnið héldi enn sínu upprunalega formi,“ 

segir Hulda.

Í markaðsfræði í skólanum hafði Hulda líka lært ýmislegt um það, hvernig stofnun fyrirtækja gengur fyrir sig og rekstur þeirra.

Hulda ákvað því að taka verkefnið skrefinu lengra og stofna fyrirtækið AKA töskur.

„Ég valdi að skýra töskuna, eða litla fyrirtækið mitt, AKA töskur því mér fannst það passa mjög vel við hugmyndina mína og undirstrika sérstöðuna,“ segir Hulda og vísar þar til þess að þar sem hráefnið í töskunum kemur úr bílum, eigi það vel við að tengja nafnið við akstur.


Tengdar fréttir

Í rekstur „með mömmu sem er alltaf til í allt“

„Aldursmunur dætranna hefur gert það að verkum að þær hafa ekki gert allt of mikið saman um ævina og þegar þessi hugmynd kom upp í huga okkar ákváðum við að með þessu væri hægt að eiga sameiginlegt markmið til að stefna að með mömmu sem er alltaf til í allt,“ segir Vilborg Norðdahl sem skömmu fyrir síðustu jól hóf rekstur með tveimur dætrum sínum undir nafninu Verzlanahöllin að Laugavegi 26.

„Algjörlega galið“ að hvatarnir séu þveröfugir við markmiðin

„Kerfið er okkar helsta áskorun þar sem hvatar eru þveröfugir og hvetja enn til þess að plast og annað endurvinnanlegt efni er flutt óunnið úr landi eða urðað. Það er algjörlega galið þar sem það hefur verri áhrif á umhverfið til viðbótar við tækifærin, verðmætin og störfin sem skapast ef við byggjum virðiskeðjuna upp hér á Íslandi,“ segir Áslaug Hulda Jónsdóttir forstöðumaður viðskipta og þróunar hjá fyrirtækinu Pure North.

Loftlagsmálin: Þurfum ekki að fara í fyrra horf

„Covid19 færði okkur breytta heimsmynd og lækkandi kolefnisspor með minni samgöngum og meiri fjarvinnu," segir Eva Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Podium sem hvetur stjórnendur til að taka stærri skref í loftlagsmálum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×