Samstarf

Meistaramótið í Betri bolta haldið í annað sinn

Sódavatnssystur ehf
Kristín Eysteinsdóttir og Valdís Arnardóttir standa fyrir mótaröðinni Meistarmótið í Betri bolta í sumar.
Kristín Eysteinsdóttir og Valdís Arnardóttir standa fyrir mótaröðinni Meistarmótið í Betri bolta í sumar.

Mótaröðin Meistaramótið í Betri bolta er að hefjast. Allir geta tekið þátt og keppa sigurvegararnir sem fulltrúar Íslands á mótinu á Algarve í Portúgal.

Meistaramótið í Betri bolta rúllar í gang laugardaginn 22. maí. Mótið er haldið í samstarfi við alþjóðlegt fyrirtæki, International Pairs sem hefur verið starfrækt allt frá árinu 1999 en þetta er í annað sinn sem það fer fram hér á landi. Mótaröðin verður haldin á sex glæsilegum golfvöllum og með netkeppni, í allt sumar og allir geta tekið þátt. En hvað er „betri bolti“?

„Betri bolti er leikfyrirkomulag þar sem spilað er í pörum og keppendur styðja hvor við annan. Þetta er ekki Texas Scramble eins og margir þekkja heldur spila báðir aðilar holuna út og skor þess sem er betri er notað sem skor liðsins á hverri holu,“ útskýrir Kristín Eysteinsdóttir en hún og Valdís Arnardóttir standa fyrir mótaröðinni í samstarfi við Bylgjuna og Stella Artois léttöl.

Miklar keppnismanneskjur

Þær Kristín og Valdís reka fyrirtækið Sódavatnssystur ehf. og eru forfallnir kylfingar sjálfar og í Golfklúbbi Reykjavíkur. Golfáhuginn varð til þess að þær keyptu fyrirtækið sem heldur mótaröðina hér á landi.

„Við sáum auglýst fyrirtæki á sviði golfafþreyingar og sáum þar gullið tækifæri til þess að vinna við það sem okkur þykir skemmtilegast, sem er að spila golf.  Við höfum spilað óhemju mikið golf undanfarin ár og tímabilið frá lok apríl og út september er alfarið helgað golfinu,“ segir Kristín en hún situr meðal annars í stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur. „Lífið snýst svolítið bara um golf og þá kemur sér vel að öll fjölskyldan sé í þessu líka," bætir Kristín við. Valdís er framkvæmdastjóri hjá litlu ferðaþjónustufyrirtæki og fyrrverandi keppnismanneskja á skíðum og hefur áhuga á flestri útivist. 

„Báðar höfum við reynslu af því að halda golfmót fyrir stórfyrirtæki. Með þá þekkingu sem og reynslu af skipulagningu viðburða og funda lá það beint við að hella sér út í fyrirtækjarekstur þar sem þetta tvennt fer saman.“ 

„Það er ýmislegt í burðarliðnum hjá Sódavatnssystrum, t.d að bjóða fyrirtækjum skipulagningu á golfmótum frá a-ö, allt frá vali á golfvelli til verðlauna og veitinga,“ segir Valdís. „Það er líka ferðabaktería í okkur báðum. Við höfum farið í golfferðir til útlanda og eignast þar margar góðar vinkonur úr öðrum klúbbum. Þær eru spenntar fyrir mótaröðinni og hafa trú á okkur og hvetja okkur til dáða. Efst á óskalistanum er skipulagning á golfferð þar sem keppni og skemmtun er í forgrunni alveg eins og í Meistaramótinu í betri bolta!“

Það er ljóst að hér eru á ferð kraftmiklar og hugmyndaríkar konur sem ætla að láta verkin tala.

Mótaröðin hefst 22. maí á Leirunni.

Hvernig gengur Meistaramótið fyrir sig?

„Þetta er stórskemmtileg mótaröð sem endar á því að vinningshafarnir í lokamótinu í Kiðjabergi fara til Portúgal sér að kostnaðarlausu í október. 

Mótin eru úrtökumót og geta keppendur tekið þátt í einu eða fleirum af Betri Bolta mótunum sem haldin verða í sumar. Fyrsta mótið er haldið í Leirunni hjá Golfklúbbi Suðurnesja þann 22. maí næstkomandi. Fimm efstu sætin í hverju móti hljóta svo keppnisrétt á lokamótinu í Kiðjabergi sem er ætlað til þess að finna sigurvegarana sem fara og keppa sem fulltrúar Íslands á mótinu á Algarve í Portúgal. Einnig verða glæsilegir vinningar fyrir efstu þrjú sætin í hverju móti svo það er til mikils að vinna - fyrir utan hvað þetta er stórskemmtilegt leikfyrirkomulag.“

Hægt að taka þátt á netinu

Samhliða opnu mótunum verður haldin netkeppni. Þar skrá keppendur sig á heimasíðunni meistaramot.is og skrá inn þrjú bestu skor sín yfir sumarið. Þá er best að skrá sig sem fyrst þar sem hægt er að uppfæra skorið og auðvitað heppilegast að komast sem fyrst í pottinn en sigurvegari hverrar viku í allt sumar í netkeppninni vinnur sér inn þátttökurétt í lokamótinu í Kiðjabergi. Eins og fram hefur komið er fyrsta mótið í Leirunni 22. maí en einnig verða haldin mót í Mosfellsbæ, Grindavík, á Akureyri, í Keili og hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×