Cloud9 í erfiðri stöðu eftir óvænt tap á öðrum degi MSI Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 8. maí 2021 08:01 Heimsmeistararnir í DWg KIA hafa nú unnið fyrstu tvo leiki sína nokkuð sannfærandi. Colin Young-Wolff/Riot Games, Inc. via Getty Images Annar dagur MSI í League of Legends fór fram í Laugardalshöll í gær. Cloud9 frá Bandaríkjunum eru komnir í erfiða stöðu eftir óvænt tap gegn DetonatioN FousMe frá Japan, og hafa nú tapað fyrstu tveim leikjum sínum. Dagurinn byrjaði á þremur leikjum sem voru nokkurn veginn fyrirfram ákveðnir. Royal Never Give Up, sem eru fulltrúar LPL í Kína, eru nú langefstir í þriggja liða A-riðli eftir tvo örugga sigra gegn Pentanet.GG og Unicorns of Love. Royal Never Give Up eru því með þrjá sigra í fyrstu þrem og í góðri stöðu í sínum riðli. Þá var sigur heimsmeistarana í DWG KIA frá Kóreu aldrei í hættu þegar þeir mættu Gillette Infinity í C-riðli. DWG KIA tók forystuna strax frá byrjun og eru nú einir í efsta sæti C-riðils með tvo sigra í tveim leikjum. Hinn leikur C-riðils var þó ekki jafn fyrirsjáanlegur þegar DetonatioN FocusMe frá Japan mætti fulltrúum LCS í Cloud9. Mistök snemma leiks sáu til þess að Cloud9 voru á eftir nánast allan leikinn og náðu aldrei að brúa bilið. Cloud9 hafa nú tapað tveim fyrstu leikjum sínum, og leikur þeirra gegn Gilette Infinity í dag er nánast upp á líf og dauða fyrir LCS meistarana. The fight that secured @teamDFM the win over @Cloud9! #MSI2021 pic.twitter.com/1qboHfQLbu— LoL Esports (@lolesports) May 7, 2021 Dagurinn endaði svo á tveim leikjum í B-riðli sem virðist ætla að verða mest spennandi riðillinn í ár. MAD Lions tróna þar á toppnum eftir góðan sigur gegn Istanbul Wildcats, sem hafa litið ágætlega út þrátt fyrir að hafa tapað fyrstu tveim leikjunum sínum. PSG Talon vann þá nokkuð sannfærandi sigur gegn PaiN Gaming eftir að hafa tapað fyrsta leiknum sínum gegn MAD Lions á fimmtudag. Hægt er að fylgjast með mótinu á Stöð 2 eSport, en útsending hefst klukkan 12:30 bæði í dag og á morgun. Úrslit gærdagsins Pentanet.GG - Royal Never Give Up Unicorns of Love - Royal Never Give up Gilette Infinity - DWG KIA DetonatioN FocusMe - Cloud9 Istanbul Wildcats - MAD Lions PaiN Gaming - PSG Talon League of Legends Tengdar fréttir 180 fermetra skjár frumsýndur á rafíþróttamóti í Laugardalshöll Tæknifyrirtækin Luxor og SmartSignage hafa fest kaup á 180 fermetra risaskjá sem notaður verður í fyrsta skipti á rafíþróttamóti sem fer nú fram í Laugardalshöll. 7. maí 2021 19:35 Allt eftir bókinni á fyrsta degi MSI Það urðu engin óvænt úrslit þegar Mid Season Invitational í League of Legends fór af stað í Laugardalshöllinni í dag. Ríkjandi heimsmeistarar opnuðu mótið með sannfærandi sigri gegn fulltrúum LCS, Cloud 9. 6. maí 2021 23:31 Mest lesið Uppgjör og myndir: Keflavík - Grindavík 89-82 | Mögnuð frammistaða Keflavíkur tryggði oddaleik Körfubolti Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Handbolti „Skulda mér mikinn pening þarna hjá Lyngby“ Fótbolti Andri og Eiður mættir til Belgíu að semja Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R. - FH | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Íslenski boltinn Líf Chaz á Íslandi gæti endað á Netflix Körfubolti Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Íslenski boltinn Trossard skaut Arsenal á toppinn Enski boltinn Sonur Kristbjargar fagnaði góðum sigri Fótbolti Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Handbolti Fleiri fréttir Fjölbrautaskóli Suðurlands sigurvegarar Framhaldsskólaleikanna Ungmennamótið í rafíþróttum hafið Fjórða vika Rocket League deildarinnar í fullum gangi í kvöld 6. umferð GR Verk deildarinnar lokið: Tæknilegir örðugleikar í deildinni Sjötta umferð GR Verk deildarinnar í kvöld: Þórsarar í efsta sæti Úrslitin ráðast í kvöld: FSu gefst tækifæri á að hreppa sinn fyrsta FRÍS bikar Mikil spenna í GR Verk deildinni: Þórsarar með stórsigur gegn DUSTY GR Verk deildin heldur áfram í kvöld Þórsarar og Dusty enn jafnir á toppnum Íslenska Rocket League-deildin farin af stað GR Verk-deildin í beinni: Þórsarar enn ósigraðir Fjölbrautaskóli Suðurlands mætir Tækniskólanum í úrslitum FSu og FG keppast um úrslitasæti gegn Tækniskólanum Þórsarar enn ósigraðir á tímabilinu Tækniskólinn kominn í úrslit Framhaldsskólaleikanna Fragg-bræðurnir efna til sumarmóts Sjá meira
Dagurinn byrjaði á þremur leikjum sem voru nokkurn veginn fyrirfram ákveðnir. Royal Never Give Up, sem eru fulltrúar LPL í Kína, eru nú langefstir í þriggja liða A-riðli eftir tvo örugga sigra gegn Pentanet.GG og Unicorns of Love. Royal Never Give Up eru því með þrjá sigra í fyrstu þrem og í góðri stöðu í sínum riðli. Þá var sigur heimsmeistarana í DWG KIA frá Kóreu aldrei í hættu þegar þeir mættu Gillette Infinity í C-riðli. DWG KIA tók forystuna strax frá byrjun og eru nú einir í efsta sæti C-riðils með tvo sigra í tveim leikjum. Hinn leikur C-riðils var þó ekki jafn fyrirsjáanlegur þegar DetonatioN FocusMe frá Japan mætti fulltrúum LCS í Cloud9. Mistök snemma leiks sáu til þess að Cloud9 voru á eftir nánast allan leikinn og náðu aldrei að brúa bilið. Cloud9 hafa nú tapað tveim fyrstu leikjum sínum, og leikur þeirra gegn Gilette Infinity í dag er nánast upp á líf og dauða fyrir LCS meistarana. The fight that secured @teamDFM the win over @Cloud9! #MSI2021 pic.twitter.com/1qboHfQLbu— LoL Esports (@lolesports) May 7, 2021 Dagurinn endaði svo á tveim leikjum í B-riðli sem virðist ætla að verða mest spennandi riðillinn í ár. MAD Lions tróna þar á toppnum eftir góðan sigur gegn Istanbul Wildcats, sem hafa litið ágætlega út þrátt fyrir að hafa tapað fyrstu tveim leikjunum sínum. PSG Talon vann þá nokkuð sannfærandi sigur gegn PaiN Gaming eftir að hafa tapað fyrsta leiknum sínum gegn MAD Lions á fimmtudag. Hægt er að fylgjast með mótinu á Stöð 2 eSport, en útsending hefst klukkan 12:30 bæði í dag og á morgun. Úrslit gærdagsins Pentanet.GG - Royal Never Give Up Unicorns of Love - Royal Never Give up Gilette Infinity - DWG KIA DetonatioN FocusMe - Cloud9 Istanbul Wildcats - MAD Lions PaiN Gaming - PSG Talon
Pentanet.GG - Royal Never Give Up Unicorns of Love - Royal Never Give up Gilette Infinity - DWG KIA DetonatioN FocusMe - Cloud9 Istanbul Wildcats - MAD Lions PaiN Gaming - PSG Talon
League of Legends Tengdar fréttir 180 fermetra skjár frumsýndur á rafíþróttamóti í Laugardalshöll Tæknifyrirtækin Luxor og SmartSignage hafa fest kaup á 180 fermetra risaskjá sem notaður verður í fyrsta skipti á rafíþróttamóti sem fer nú fram í Laugardalshöll. 7. maí 2021 19:35 Allt eftir bókinni á fyrsta degi MSI Það urðu engin óvænt úrslit þegar Mid Season Invitational í League of Legends fór af stað í Laugardalshöllinni í dag. Ríkjandi heimsmeistarar opnuðu mótið með sannfærandi sigri gegn fulltrúum LCS, Cloud 9. 6. maí 2021 23:31 Mest lesið Uppgjör og myndir: Keflavík - Grindavík 89-82 | Mögnuð frammistaða Keflavíkur tryggði oddaleik Körfubolti Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Handbolti „Skulda mér mikinn pening þarna hjá Lyngby“ Fótbolti Andri og Eiður mættir til Belgíu að semja Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R. - FH | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Íslenski boltinn Líf Chaz á Íslandi gæti endað á Netflix Körfubolti Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Íslenski boltinn Trossard skaut Arsenal á toppinn Enski boltinn Sonur Kristbjargar fagnaði góðum sigri Fótbolti Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Handbolti Fleiri fréttir Fjölbrautaskóli Suðurlands sigurvegarar Framhaldsskólaleikanna Ungmennamótið í rafíþróttum hafið Fjórða vika Rocket League deildarinnar í fullum gangi í kvöld 6. umferð GR Verk deildarinnar lokið: Tæknilegir örðugleikar í deildinni Sjötta umferð GR Verk deildarinnar í kvöld: Þórsarar í efsta sæti Úrslitin ráðast í kvöld: FSu gefst tækifæri á að hreppa sinn fyrsta FRÍS bikar Mikil spenna í GR Verk deildinni: Þórsarar með stórsigur gegn DUSTY GR Verk deildin heldur áfram í kvöld Þórsarar og Dusty enn jafnir á toppnum Íslenska Rocket League-deildin farin af stað GR Verk-deildin í beinni: Þórsarar enn ósigraðir Fjölbrautaskóli Suðurlands mætir Tækniskólanum í úrslitum FSu og FG keppast um úrslitasæti gegn Tækniskólanum Þórsarar enn ósigraðir á tímabilinu Tækniskólinn kominn í úrslit Framhaldsskólaleikanna Fragg-bræðurnir efna til sumarmóts Sjá meira
180 fermetra skjár frumsýndur á rafíþróttamóti í Laugardalshöll Tæknifyrirtækin Luxor og SmartSignage hafa fest kaup á 180 fermetra risaskjá sem notaður verður í fyrsta skipti á rafíþróttamóti sem fer nú fram í Laugardalshöll. 7. maí 2021 19:35
Allt eftir bókinni á fyrsta degi MSI Það urðu engin óvænt úrslit þegar Mid Season Invitational í League of Legends fór af stað í Laugardalshöllinni í dag. Ríkjandi heimsmeistarar opnuðu mótið með sannfærandi sigri gegn fulltrúum LCS, Cloud 9. 6. maí 2021 23:31
Uppgjör og myndir: Keflavík - Grindavík 89-82 | Mögnuð frammistaða Keflavíkur tryggði oddaleik Körfubolti
Uppgjör og myndir: Keflavík - Grindavík 89-82 | Mögnuð frammistaða Keflavíkur tryggði oddaleik Körfubolti