Heimsmarkmiðin

Milljónir sjá fram á matarskort næstu mánuði

Heimsljós
Útimarkaður í Kano, Nígeríu. 
Útimarkaður í Kano, Nígeríu.  WFP/Arete/Adetona Omokanye

Hækkandi matvælaverð, stríðsátök og afleiðinga heimsfaraldurs valda matarskorti.

Rúmlega 31 milljón íbúa Vestur- og Mið-Afríku kemur að óbreyttu til með að draga fram lífið við hungurmörk á næstu mánuðum vegna „eitraðrar blöndu“ stórhækkandi matvælaverðs, stríðsátaka og afleiðinga heimsfaraldurs kórónuveiru. Að sögn Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) hafa hungraðir í þessum heimshluta ekki verið fleiri í marga áratugi og miðað við sama tíma fyrir ári hefur þeim sem hafa lítið að bíta og brenna fjölgað um 30 prósent.

Að mati WFP þarf að grípa til tafarlausra aðgerða til að forða stórslysi. Mánuðirnir sem í hönd fara eru jafnan nefndir „mögru mánuðirnir“ í þessum heimshluta en uppskerutíminn hefst í september.

„Í Vestur-Afríku valda átök nú þegar hungri og vesöld. Sífelld hækkun verðs á matvælum margfaldar eymdina og þá örvæntingu sem henni fylgir,“ segir Chris Nikoi svæðisstjóri WFP í Vestur-Afríku. „Jafnvel þegar matur er í boði hafa fjölskyldur einfaldlega ekki efni á honum – og síhækkandi matvælaverð leiðir til þess að ein grunnmáltíð er milljónir fátækra fjölskyldna ofviða.“

Aðgerðir til að draga úr útbreiðslu COVID-19 eru meðal skýringa á hækkun matvælaverðs og á sama tíma hefur orðið tekjufall hjá mörgum fjölskyldum. Nikoi segir að von milljóna fjölskyldna sé bundin við mataraðstoð þar til ytri aðstæður verði fólki hagfelldar.

Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna þarf 770 milljónir bandarískra dala til að fjármagna stuðninginn í 19 löndum Vestur- og Mið-Afríku næstu sex mánuði. Matvælaaðstoðin myndi ná til þeirra 18 milljóna íbúa í þessum heimshluta sem verst er staddir.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×