Innlent

Smit í Öldu­túns­skóla í fimmta sinn

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Valdimar Víðisson, skólastjóri Öldutúnsskóla.
Valdimar Víðisson, skólastjóri Öldutúnsskóla. Samsett

Nemandi í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði greindist með kórónuveiruna í gær. Hátt í þrjátíu nemendur í 5. bekk skólans og þrír starfsmenn þurfa í sóttkví. Þetta er í fimmta sinn sem smit kemur upp í skólanum frá því faraldurinn hófst.

Frá þessu er greint á vef skólans í dag.  Valdimar Víðisson, skjólastjóri Öldutúnsskóla, segir í samtali við Vísi að sá smitaði tengist fyrri smitum og hafi ekki smitast innan skólans.

Síðast kom upp smit í skólanum í síðustu viku en þá voru um 70 send í sóttkví og eru væntanleg aftur í skólann á morgun að lokinni sýnatöku. Þá fóru um 200 manns í sóttkví eftir að smit kom upp í skólanum í lok mars.

„Við vorum einmitt að tala um það í morgun að þetta hefur dreifst tiltölulega jafnt yfir skólann, okkur telst til að það séu eingöngu þrír árgangar af tíu í skólanum sem hafa ekki þurft að fara í sóttkví,“ segir Valdimar.

Hann segir andann í skólanum mjög góðan og tekist hafi verið á við smitin af festu og öryggi.

„Við pössum mjög gaumgæfilega upp á sóttvarnirnar innanhúss. En það gefur auga leið að þetta er mjög hvimleitt fyrir marga, það hafa meðal annars frestast ýmsar athafnir. Við heyrðum einmitt af því að það þurfi að fresta fermingarathöfn nú um helgina út af þessu,“ segir Valdimar.

„Það kann að hljóma einkennilega en maður er eiginlega orðinn of kunnugur þessu. Maður þekkir of mikið til svona verkferla. Þetta er ekki staða sem maður myndi vilja vera í.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×