Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni Covid.is.
83 eru nú í einangrun, samanborið við 93 í gær. 199 eru nú í sóttkví, en voru 147 í gær. 1130 eru nú í skimunarsóttkví. Þá eru tveir nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19,en var einn í gær.
Einn greindist á landamærum og greindist sá í seinni landamæraskimun.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 13,9, en var 16,1 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 6,0 líkt og í gær.
28.056 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 33.078 til viðbótar.

Alls hafa 6.274 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.
Alls voru tekin 763 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 743 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 210 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.
Fréttin hefur verið uppfærð.