Viðskipti innlent

Ráðinn fjár­mála­stjóri Secu­ritas

Atli Ísleifsson skrifar
Jóhann Gunnar Jóhannsson.
Jóhann Gunnar Jóhannsson. Securitas

Jóhann Gunnar Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Securitas.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Securitas. Þar segir að Jóhann Gunnar hafi áður starfað sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Isavia.

Þar áður hafi hann starfað sem framkvæmdarstjóri fjármála- og mannauðssviðs hjá Ölgerðinni og einnig sem aðstoðarforstjóri Icelandic Group.

Jóhann er löggiltur endurskoðandi og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×