Atvinnulíf

Ómetanlegt að geta þegið ráð frá sterkum leiðtogum

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Sigyn Jónsdóttir hjá Men&Mice.
Sigyn Jónsdóttir hjá Men&Mice. Vísir/Vilhelm

„Fræðslan nýttist mér beint inn í mín störf hjá Men&Mice þar sem ég fékk snemma tækifæri til að þróast í starfi og þar kom reynslan úr stjórnarstarfi félagsins ekki síður að góðum notum. Enn fremur gaf UAK mér sterkt tengslanet, sem hefur leitt af sér ýmis tækifæri sem ég efa að hefðu annars staðið mér til boða,“ segir Sigyn Jónsdóttir, VP of Customer Care hjá Men & Mice um það hvernig henni fannst félagsskapurinn UAK, Ungar athafnakonur, nýtast sér með beinum hætti á sinni framabraut.

Sjálf var Sigyn formaður félagsins tímabilið 2017-2019. Það var þó af tilviljun sem hún dróst inn í félagsskapinn á sínum tíma. Sigyn er ein þeirra UAK kvenna sem mun taka þátt í ráðstefnu UAK sem haldin verður á laugardag í Hörpu. 

Í kjölfarið fylgja viðburðir í viku sem sérstaklega er ætlað ungum athafnakonum á framabraut. „Í UAK færðu tækifæri til að fræðast um atvinnulífið og fyrstu skrefin á vinnumarkaði, þú getur setið námskeið í samningatækni, fengið leiðtogaþjálfun og svo mætti lengi telja,“ segir Sigyn.

Í dag og á morgun fjallar Atvinnulífið um málefni ungra kvenna í atvinnulífinu, tengt yfirskrift UAK ráðstefnunnar Frá áhrifum til aðgerða – Vertu breytingin.“

Stjórnunarstarf og stjórnarseta

Flestir viðskiptavinir hugbúnaðarfyrirtækisins Men&Mice eru í Bandaríkjunum og á meginlandi Evrópu. Stöðuheiti Sigynjar hefur því ekki verið þýtt á íslensku, en erlend starfsheiti eru orðin æ algengari í íslensku atvinnulífi. 

Til skýringar á því í hverju starf Sigynjar felst, má segja að hennar helsta verkefni sé að leiða teymi sérfræðinga sem þjónusta viðskiptavini Men&Mice um allan heim, sbr. Vice President (VP) of Customer Care.

Þá situr Sigyn í stjórn Tækniþróunarsjóðs, en það er sá sjóður Rannís sem veitir hvað hæstu styrkina fyrir nýsköpunarfyrirtæki.

Sigyn er með meistaragráðu í Management Science & Engineering frá Columbia University í Bandaríkjunum.

Sigyn segir UAK hafa hjálpað sér mikið strax að loknu námi.

Systir mín dró mig með sér á UAK fund fyrir nokkrum árum þegar ég var nýflutt heim frá New York þar sem ég hafði verið í meistaranámi. Það var einstök upplifun að mæta í fullan sal ungra kvenna með háleit markmið og skýra hugsjón og hlusta á sterkar kvenfyrirmyndir deila sinni reynslu,“ 

segir Sigyn.

Á ráðstefnunni á laugardag mun Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður heimsráðs kvenleiðtoga flytja opnunarávarp. 

Meðal erlendra gesta eru Caritta Seppa, einn stofnenda og rekstrarstjóri Tespack, Emma Holten, aktavisti og pólitískur ráðgjafi Kvennaráðs Danmerkur og Salam Al-Nukta, aktavisti, frumkvöðull, stofnandi og framkvæmdastjóri ChangeMakers. 

Innlendir fyrirlesarar verða Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Lyfju, Birna Dröfn Birgisdóttir sköpunargleðifræðingur, María Bjarnadóttir lögfræðingur og doktorsnemi, Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu og Sigurlína Ingvarsdóttir sem starfar lengi starfaði hjá CCP en starfar nú hjá tölvuleikjafyrirtækinu Bonfire Studeos.

Sigyn segir ungar konur geta fengið mikinn innblástur og stuðning með því að hlusta á og efla tengsl við aðrar konur í atvinnulífinu. Því var það þannig í hennar tilfelli, að strax á fyrsta fundi ákvað hún að taka þátt í UAK.

„Ég man að á þessum fundi kviknaði hjá mér mikill áhugi á að taka þátt í starfsemi félagsins. Úr varð að ég sat í tvö ár sem formaður og leiddi starfsemi UAK ásamt framúrskarandi hópi kvenna sem ég á enn dýrmæt tengsl við í dag,“ segir Sigyn og bætir við: „En umfram allt er UAK mjög valdeflandi og hvetjandi félagsskapur sem gefur þér kraft og sjálfstraust í að takast á við krefjandi verkefni og láta gott af þér leiða.“

Sigyn segir það nýtast ungum konum vel að þiggja ráð frá eldri konum í atvinnulífinu og sterkum kvenfyrirmyndum.Vísir/Vilhelm

Ungar konur sem vilja „vera“ breytingin

Í kynningu UAK ráðstefnunnar segir meðal annars:

Við erum ekki tilbúnar til þess að bíða eftir að hlutirnir breytist heldur ætlum við að taka virkan þátt í að skapa samfélagið sem við viljum búa í.“

Við spyrjum Sigyn, hvaða ráð hún geti gefið ungum konum í atvinnulífinu sem vilja ná því markmiði að vera sjálfar breytingin.

„Til þess að vera breytingin þarftu að beita gagnrýnni hugsun og láta í þér heyra.

Þú þarft að hugsa inn á við, og út á við.

Hvernig beitir þú þér fyrir jafnrétti í nærumhverfinu og hvaða breytingar vilt þú sjá í samfélaginu? Það er svo mikilvægt að vita hvað þú stendur fyrir og vinna út frá því.

Til að breyta hlutunum þarf svo að eiga samtal, og það er ekki einkasamtal kvenna því jafnréttismál varða okkur öll,“ segir Sigyn.

Að sögn Sigynjar er hennar hlutverk á ráðstefnunni það að stýra spjalli við Sigríði Margréti Oddsdóttur framkvæmdastjóra Lyfju, um hvernig hægt er að nýta ástríðuna til að ná árangri í starfi.

Í samtali sem þessu, segir Sigyn það nýtast ungum konum að þiggja ráð frá sér eldri konum.

„Ég hlakka mjög mikið til að ræða við Siggu Möggu um hvernig ástríða knýr fram stærstu breytingarnar, í leik og starfi. Spjallið verður á léttu nótunum og ég ætla að sjálfsögðu að nýta mér aðstæður og þiggja ráð frá henni,“ segir Sigyn og bætir við: 

Það er ómetanlegt fyrir konu eins og mig, stjórnanda sem er að stíga sín fyrstu skref, að geta spurt sterka leiðtoga um aðferðir til árangurs, fórnir sem þarf að færa til að ná markmiðum sínum og hvernig sé hægt að takast á við þær daglegu áskoranir sem blasa við í teymisvinnu og fyrirtækjarekstri.“

Þetta er í fjórða sinn sem UAK stendur fyrir ráðstefnu og viðburðarviku sem þessari og segist Sigyn hafa trú á að stemningin verði góð. „Ég vona innilega að í framhaldinu skapist líflegar umræður með þátttöku áhorfenda, eins og vill oft verða á viðburðum UAK.“


Tengdar fréttir

Ungt fólk sækir í störf hjá fyrirtækjum sem hlúa að jafnrétti og sjálfbærni

Bjarney Harðardóttir, einn eigenda 66°Norður segir reynslu fyrirtækisins vera að ungt fólk sækist í störf hjá fyrirtækjum sem vinna að því að vera fyrirmyndir í jafnréttis- og sjálfbærnimálum. Bjarney segist þeirrar skoðunar að fyrirtæki sem ekki huga að þessum málum muni tilheyra fortíðinni.

„Ég sæki kraft, hugmyndir og gleði“

Gestir Heimsþings kvenleiðtoga segja þingið afar mikilvægt fyrir stjórnendur í atvinnulífinu og alla umræðu um jafnréttismálin. Þangað sækja stjórnendur sér fræðslu, þekkingu, dæmisögur, niðurstöður rannsókna auk innblásturs, kraft og gleði.

Jafnréttismálin í útrás til Evrópu og Bandaríkjanna

Þórey Vilhjálmsdóttir segir fyrirtækið Empower stefna á útrás með jafnréttismálin. Sérstaklega er horft til Evrópu og Bandaríkjanna. Í viðtali nefnir Þórey nokkur dæmi um algengar birtingarmyndir á kynbundnum fordómum á vinnustöðum.

„Eigum samt enn langt í land“

Hanna Birna Kristjánsdóttir stjórnarformaður Heimsþings kvenleiðtoga segist afar stolt af þeim árangri sem Ísland hefur náð í jafnréttismálum. Staðan sé þó enn ekki nógu góð og hindranir meðal annars þær að enn hvíla heimilisstörf og barnauppeldi mun þyngra á konum en körlum.

Konur taka við af konum sem framkvæmdastjórar

Konur eru líklegri til að taka við konum sem framkvæmdastjórar en þróunin er hæg segir Brynja Baldursdóttir meðal annars í viðtali um greiningu Creditinfo á kynjahlutföllum stjórnenda í Framúrskarandi fyrirtækjum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×