Atvinnulíf

„Ég sæki kraft, hugmyndir og gleði“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Fv. Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, Hrund Gunnsteinsdóttir, Ketill Berg Magnússon, Kristín Lind Árnadóttir.
Fv. Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, Hrund Gunnsteinsdóttir, Ketill Berg Magnússon, Kristín Lind Árnadóttir.

Gestir Heimsþings leiðtogakvenna segja þingið afar mikilvægt fyrir jafnréttismálin. Þar fái stjórnendur og atvinnulíf innblástur, fræðslu, dæmisögur og niðurstöður rannsókna sem hægt er að taka með strax af vettvangi og nýta á vinnustöðum. Þá segja gestir þingið mikilvægt fyrir Ísland sem fyrirmynd.

Í Atvinnulífinu á Vísi í gær og í dag er fjallað um Heimsþing kvenleiðtoga út frá forsendum stjórnenda og atvinnulífs. Heimsþingið er í þetta sinn haldið á netinu en þátttakendur eru yfir 600 kvenleiðtogar úr stjórnmálum, viðskiptum, fjölmiðlum, vísindum og tæknigeiranum í yfir 100 löndum.

Fjöldinn allur af stjórnendum úr íslenska atvinnulífinu hefur tekið þátt í Heimsþingi kvenleiðtoga síðustu daga. Atvinnulífið spurði nokkra gesti, hvaða þýðingu þingið hefði.

Spurt var:

Hversu þýðingarmikið er heimsþing sem þetta fyrir konur í atvinnulífinu og hvað hefur þér fundist heimsþingið gefa þér?

„Magnað að finna kraftinn“

Elín Helga Sveinbjörnsdóttir framkvæmdastjóri Hvíta hússins:

Elín Helga Sveinbjörnsdóttir.

„Heimsþingið hefur margþætta þýðingu og áhrif sem mögulega er erfitt að mæla. Það sem er sérstaklega jákvætt er þessi alþjóðlegi kraftur og innblástur. Efnistökin eru víðtæk innan málaflokksins og athyglisvert að fá innsýn hver staðan er á mismunandi sviðum, atvinnugreinum, í mismunandi heimsálfum og fleira.

Þetta gefur okkur tækifæri til að máta viðhorf okkar og stöðu milli heimsálfa og atvinnugreina. 

Það er svo magnað að finna kraftinn sem er til staðar um allan heim og þingið fyllir mann bjartsýni um jafnréttismál.

Það er gæfa fyrir okkur að þingið sé haldið á Íslandi. Það er mikilvægt að við séum fyrirmynd í jafnréttismálum það hefur með samkeppnishæfni þjóðarinnar að gera,“ segir Elín.

„Virkjar okkur til aðgerða“

Hrund Gunnsteinsdóttir.

Hrund Gunnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Festu:

„Fyrir virka þátttakendur í heimsþinginu og mig persónulega hefur þingið gefið mjög mikilvæga innsýn inn í þróun mála um allan heim, gefur okkur dæmi til eftirbreytni, virkjar okkur til aðgerða þar sem pottur er brotinn, staðfestir að sömu stefin finnast um allan heim.

Því þó það sé stigsmunur þá er aldrei eðlismunur, og í gegnum söguna eru mýmörg dæmi sem gefa okkur verkfæri, aðferðarfræði og dæmisögur beint í æð, sem hægt er að taka með á vettvang strax,“ 

segir Hrund.

„Ég sæki kraft, hugmyndir og gleði“

Kristín Linda Árnadóttir.

Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar:

„Heimsþingið hefur mikla þýðingu fyrir konur í atvinnulífinu, því þar náum við að spegla reynslu okkar í afar breiðum, alþjóðlegum hópi. 

Þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir eru keimlíkar, hvort sem við stýrum opinberum fyrirtækjum á Íslandi, einkafyrirtækjum á Ítalíu, frjálsum félagasamtökum í Bandaríkjunum eða stofnunum á Indlandi. 

Það er valdeflandi að ræða sameiginlegar áskoranir og leiðir til úrbóta.

Ég sæki kraft, hugmyndir og gleði í þetta stóra samfélag kvenna, þar sem hver og ein er reiðubúin að miðla reynslu sinni og þekkingu í þágu kynsystra sinna,“ 

segir Kristín Linda.

„Hvetjandi fyrir alþjóðlegt fyrirtæki“

Ketill Berg Magnússon.

Ketill Berg Magnússon, 

mannauðstjóri Marel:

„Heimsþing kvenleiðtoga er mjög mikilvægt fyrir Ísland og Íslendinga.

Það heldur jafnréttisumræðunni lifandi og gefur okkur tækifæri til að hafa áhrif á jafnréttisumræðuna í heiminum.

Heimsþingið er hvetjandi fyrir alþjóðlegt fyrirtæki eins og okkur hjá Marel, þar koma fram rannsóknir og skoðanir sem hjálpa okkur að móta stefnur og verkefni til að auka margbreytilieka og þátttöku alls starfsfólks í fyrirtækinu,“

segir Ketill.


Tengdar fréttir

Ungt fólk sækir í störf hjá fyrirtækjum sem hlúa að jafnrétti og sjálfbærni

Bjarney Harðardóttir, einn eigenda 66°Norður segir reynslu fyrirtækisins vera að ungt fólk sækist í störf hjá fyrirtækjum sem vinna að því að vera fyrirmyndir í jafnréttis- og sjálfbærnimálum. Bjarney segist þeirrar skoðunar að fyrirtæki sem ekki huga að þessum málum muni tilheyra fortíðinni.

Jafnréttismálin í útrás til Evrópu og Bandaríkjanna

Þórey Vilhjálmsdóttir segir fyrirtækið Empower stefna á útrás með jafnréttismálin. Sérstaklega er horft til Evrópu og Bandaríkjanna. Í viðtali nefnir Þórey nokkur dæmi um algengar birtingarmyndir á kynbundnum fordómum á vinnustöðum.

„Eigum samt enn langt í land“

Hanna Birna Kristjánsdóttir stjórnarformaður Heimsþings kvenleiðtoga segist afar stolt af þeim árangri sem Ísland hefur náð í jafnréttismálum. Staðan sé þó enn ekki nógu góð og hindranir meðal annars þær að enn hvíla heimilisstörf og barnauppeldi mun þyngra á konum en körlum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×