Atvinnulíf

Konur taka við af konum sem framkvæmdastjórar

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Brynja Baldursdóttir framkvæmdastjóri Creditinfo.
Brynja Baldursdóttir framkvæmdastjóri Creditinfo. Vísir/Vilhelm

„Þótt kynjahlutföllin hafi batnað til hins betra hjá Framúrskarandi fyrirtækjum þá er það enn allt of lágt, sérstaklega þegar það er borið saman við kynjahlutföll í stjórnum og framkvæmdastjórnum allra fyrirtækja á landinu. Vöxturinn hefur verið hægur en við vonumst til að sjá hlutfall kvenna halda áfram að vaxa,“ segir Brynja Baldursdóttir framkvæmdastjóri Creditinfo um þær niðurstöður að konur eru einungis 13% framkvæmdastjóra Framúrskarandi fyrirtækja. 

Þá sýna tölur Creditinfo að á síðustu þremur árum hafa karlmenn verið ráðnir framkvæmdastjórar Framúrskarandi fyrirtækja í 80% tilvika.

„Á undanförnum þremur árum hefur kona verið ráðin sem framkvæmdastjóri í um 26% tilfella sé horft á öll fyrirtæki. Sambærilegt hlutfall er 20% hjá Framúrskarandi fyrirtækjum,“ segir Brynja.

Þá vekur það sérstaka athygli að konur virðast taka við af konum.

Annað sem vekur eftirtekt við nánari skoðun er að konur eru mun líklegri til að taka við framkvæmdastjórastöðu af hendi konu en karls, hvort sem horft er á öll fyrirtæki eða Framúrskarandi fyrirtæki,“ 

segir Brynja og bætir við: „Munurinn er 10 prósentustig í framkvæmdastjóraskiptum hjá öllum fyrirtækjum en 14 prósentustig hjá Framúrskarandi fyrirtækjum. Sambærilegur munur verður svo enn meiri sé horft á breytingar á stjórnarmönnum fyrirtækjanna.“

Creditinfo hefur birt lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki fyrir rekstrarárið 2019. Í þetta sinn eru fyrirtækin 842 talsins og fækkar lítillega á milli ára. Að mati sérfræðinga Creditinfo gæti það bent til þess að einhver kólnun hafi átt sér stað í íslensku atvinnulífi óháð Covid-19. Þetta er í ellefta sinn sem Creditinfo veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu en til að teljast Framúrskarandi þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði um stöðugan rekstur í þrjú ár aftur í tímann.

Samkvæmt greiningu Creditinfo eru konur um 13% framkvæmdastjórar Framúrskarandi fyrirtækja en um 25% framkvæmdastjórar allra fyrirtækja. Þá sýnir greining Creditinfo að konur eru um fjórðungur stjórnarmanna Framúrskarandi fyrirtækja. Í dag og á morgun fjallar Atvinnulífið á Vísi um þetta kynjahlutfall stjórnenda.

Konur 31% eigendur Framúrskarandi fyrirtækja

Þótt konur séu aðeins 13% framkvæmdastjóra Framúrskarandi fyrirtækja eru þær ríflega þriðjungur eigenda þeirra.

Ef við horfum til allra fyrirtækja á landinu þá eru um 34% stofnenda fyrirtækja konur og um 31% eigenda allra íslenskra fyrirtækja á landinu eru konur. Hlutfallið er sambærilegt en þó aðeins minna hjá Framúrskarandi fyrirtækjum þar sem 31% stofnenda Framúrskarandi eru konur og konur eru eigendur í 31% af öllum Framúrskarandi fyrirtækjum,“ 

segir Brynja.

En þrátt fyrir þetta eigendahlutfall kvenna er hlutfall kvenna sem framkvæmdastjórar um 13% í hópi Framúrskarandi fyrirtækja en um 25% í öllum fyrirtækjum.

„Þessi hlutföll eru þó nokkuð lægri en hlutföll kvenna meðal stofnenda og eigenda sömu fyrirtækja. Sú staðreynd skýtur skökku við,“ segir Brynja.

Brynja segir þróunina hæga þegar horft er til hlutfalls kvenna í framkvæmdastjórnum en hefur trú á því að auknar áherslur viðskiptalífs á sjálfbærni muni smátt og smátt breyta því. Á næsta ári verður skilyrði um sjálfbærni bætt við í mælikvarða Creditinfo fyrir fyrirtæki sem teljast Framúrskarandi fyrirtæki.Vísir/Vilhelm

En er eitthvað mynstur í því hvers konar fyrirtæki konur eru einna helst sem framkvæmdastjórar og/eða ekki? Er munur á landsbyggð og höfuðborg?

„Við tökum ekki eftir því að það sé marktækur munur á hlutföllunum eftir landshlutum. Ef eitthvað er þá er líklegra að konur stýri fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu en munurinn er bara nokkur prósentustig. 

Við höfum einnig skoðað hvort kynjahlutföll breytast eitthvað eftir stærð fyrirtækja, það er hvort það sé algengara að konur séu framkvæmdastjórar í smærri eða stærri fyrirtækjum. Í ljós kemur að kynjahlutföllin eru ekki að breytast mikið ef við skoðum fyrirtæki með háar tekjur eða miklar eignir,“ 

segir Brynja.

Sveiflur í tölum

Að sögn Brynju hefur konum fjölgað lítillega á milli ára.

„Hlut­fall kvenna í stjórn­um Framúrsk­ar­andi fyr­irtækja jókst um eitt ­pró­sentustig frá fyrra ári í rúm ­25%, sem er ör­lítið hærra en meðaltal allra fyr­ir­tækja, og hlut­fall kven­fram­kvæmda­stjóra jókst úr 12% í 13%. Til samanburðar þá voru konur rúmlega 25% af framkvæmdastjórum allra fyrirtækja á Íslandi á sama tíma og hlutfall kvenkyns stjórnarmanna var tæplega 25%,“ segir Brynja.

Þróunin virðist því bæði hæg og jafnvel sveiflótt.

,,Hlutur kvenna í framkvæmdastjórn hefur farið vaxandi hjá öllum fyrirtækjum frá árinu 2009, úr 21% upp í 25%, en hjá Framúrskarandi fyrirtækjum hefur hlutfallið hins vegar lækkað úr rúmlega 17% í 13% á sama tímabili. Þó má sjá hlutfallið færast upp á við síðustu þrjú ár,“ segir Brynja.

Hefur trú á mælikvörðum um sjálfbærni

Hingað til hafa skilyrði Creditinfo til að teljast Framúrskarandi fyrirtæki öll verið fjárhagsleg. Að sögn Brynju hefur Creditinfo þó veitt sérstök hvatningarverðlaun um samfélagsábyrgð og nýsköpun, samhliða útnefningu Framúrskarandi fyrirtækja. „En okkur hefur skort gögn til að leggja tölfræðilegt mat á þessa mælikvarða,“ segir Brynja.

Úr þessu verður þó bætt því frá og með næsta ári mun Creditinfo bæta við sérstökum mælikvörðum um sjálfbærni.

„Við mun­um taka þetta í skref­um og byrja smátt en þegar fram líða stund­ir sjá­um við fyr­ir okk­ur að mæla þessa þætti með um­fangs­meiri hætti. Það skipt­ir miklu máli að fyr­ir­tæki sem vilja ná ár­angri í sjálf­bærni geti stuðst við mæli­kv­arða og sett sér raun­hæf mark­mið í þess­um efn­um,“ segir Brynja og bætir við: 

Við trúum því líka að því öflugri mælikvarðar sem liggja fyrir um sjálfbærni í rekstri því líklegra er að fyrirtæki grípi til raunhæfra aðgerða í að efla sjálfbærni í eigin rekstri. Stór liður í þessu er að jafna kynjahlutföll í stjórnum og framkvæmdastjórn.“

Brynja segir markmiðið vera að fyrirtæki geti metið sjálfbærni samhliða fjárhagsgögnum. Sjálf segist hún hafa trú á því að aukin áhersla á sjálfbærni muni hraða þróun um aukið hlutfall kvenna sem framkvæmdastjórar og í stjórn.

„Vonandi mun meiri áhersla í viðskiptalífinu á sjálfbærni í rekstri hafa jákvæð áhrif á þessa þróun og flýta henni. Vöxtur undanfarinna ára er hreinlega allt of hægur,“ segir Brynja.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×