Strákarnir okkar! Magnús Þór Jónsson skrifar 19. febrúar 2021 14:30 Reglulega kemur upp í okkar samfélagi umræða um stöðu íslenskra drengja í skólakerfinu og nú að undanförnu hefur hún bara orðið umfangsmikil. Áður en lengra er haldið er líklega best að láta vita að ég tel mig til þessa hóps. Ég er drengur í íslensku grunnskólakerfi. Vissulega stefni ég á að fylla 50 árin fljótlega en grunnskólinn hefur verið minn vettvangur með litlum hléum frá því á áttunda áratug liðinnar aldar þegar ég labbaði þangað inn með skólatöskuna mína, síðar var mér treyst fyrir kennslu og undanfarin ár að leiða skólastarf. Alltaf þó drengur í skóla. Þróun í skólastarfi hefur verið mikil á þessum tíma. Því miður er alltof lítil umfjöllun á Íslandi um það kjarnastarf sem unnið er í skólum á landsvísu hvern dag og í staðinn dúkka reglulega upp fréttir sem tengjast því þegar ákveðnir mælanlegir þættir koma upp, kannanir og próf, auk þess sem að einstakir viðburðir fá sviðsljósið. Vissulega oft skemmtilegar fréttir af nýsköpun í skólastarfi og gleðilegum viðburðum en þó að mínu mati er oftar umræða um neikvæða þætti sem upp kunna að koma í skólastarfi. Ég hef hugsað oft og reglulega um það á liðnum árum, því umræðan hefur verið lengi í gangi, hvort að við sem búum við þau forréttindi að fara um íslenska skóla séum nægilega oft að láta vita hvað við erum stolt af nemendum okkar af öllum kynjum og gerðum. Hvort að við erum nægilega virk í því að láta vita af þeim sigrum sem börn vinna hvern dag í náminu sínu. Námi sem er svo sannarlega á miklu betri stað en þegar ég labbaði inn í minn annars frábæra skóla austur á Eiðum 1978. Skólinn minn í æsku var góður skóli en að sjálfsögðu komu þá, eins og nú, upp viðfangsefni sem sumir réðu við en aðrir ekki. Þannig er lífið sjálft og skóli á að spegla lífið. Gangur skólastarfs er alltaf á þann veg að bregðast við þeim viðfangsefnum sem upp koma og ég get fullvissað ykkur um að í dag eru leiðirnar sem kennarar geta boðið uppá svo miklu fleiri en áður og stöðugt að þróast í ólíkar áttir. Því miður er það svo að íslenskar menntarannsóknir hafa ekki náð fyllilega þeim hæðum sem óskandi væri. Það eru t.d. engin gögn til um líðan eða árangur drengjanna sem löbbuðu um ganga íslenskra grunnskóla samtíða mér. Mín tilfinning og annarra sem eru nálægt mér í aldri og eins og ég ennþá drengir í grunnskóla er að staðan í þessum málum nú sé langtum betri en þá. Munurinn liggi í því að nú teygi skólar sig mun lengra til að aðstoða hvern einstakling en áður var en því miður eru ekki gögn sem hægt er að vísa í með óyggjandi hætti. Það hafa þó verið gerðar rannsóknir. Mig langar að benda áhugasömum á bókina „Karlmennska og jafnréttisuppeldi“ sem Ingólfur Ásgeir Jóhannesson gaf út árið 2004. Þar er margan fróðleik að finna og of langt mál hér að fara yfir. Bókin finnst mér fanga þann kjarna sem ég er lykillinn að skólastarfi fyrir alla…sem er auðvitað það sem við erum að leita að. Ingólfur bendir einmitt í umræddri bók þá ákveðnu hættu á einföldun sem felst í kynjaðri umræðu um skólastarf. Rannsóknir sýna t.d. að meirihluti drengja geta lesið sér til gagns og vanlíðan unglingsstúlkna í skólakerfinu er mun meiri en drengja, umræðan nú skilur nefnilega þá hópa sem dæmi útundan þegar leitað væri lausna og jaðarsetur því mögulega einstaklingana innan þeirra. Lykillinn að árangri og ánægju í námi er að virkja áhugasvið nemenda. Þannig fær hver einstaklingur óháð kyni eða nokkrum öðrum mannlegum breytum mesta tækifærið til að njóta sín. Það er einföld setning að segja en auðvitað flóknara að leysa þegar horft er til skólakerfis þar sem að hundruð barna eru í sumum húsum og tugir saman í kennslustofum. Litróf kennsluaðferða er tækið ásamt lausnamiðaðri hugsun kennarans og í raun alls skólakerfisins. Það kostar vissulega meiri pening að horfa eftir ólíkum töktum, það er einfaldara og ódýrara að labba í takt. Þar liggur ein rót vandans. Okkur hefur á liðnum árum verið færð alls konar hugmyndir og kennslutæki inn í skólana og stöðugt fleiri fræðimenn hafa sýnt íslensku skólakerfi áhuga. Erlendir fræðimenn hafa margir hverjir lýst því hvað þeim finnst íslenskir skólar gera margt til þess að fanga áhuga nemenda og nokkrir þeirra hafa óskað okkur til hamingju með að vera best í PISA-könnuninni. Við Íslendingar höfum þó lítið rætt um þann þátt könnunarinnar sem snýr að líðan barnanna í skólakerfinu okkar samanborið við aðrar þjóðir, nokkuð sem þeim erlendu fræðimönnum finnst eftirsóknarverðara en okkur. Við nefnilega eigum það til að vandamálavæða umræðu um skólamálin okkar og ráðast í skýrslugerðir og í framhaldi áætlanir um lausnir sem margar hverjar geta stutt við skólastarf. Hins vegar erum við verri í því að útfæra það hvað og síðan hvernig það skal gert og klárlega nýtum við ekki nægilega vel þann mannauð sem er að finna í íslenskri skólaflóru til að leiða það starf. Enginn skal halda það að við drengirnir viljum ekki ná árangri í þeim þáttum sem umræðan hefur tekið á síðustu áratugina því við erum keppnismenn. Það er vænlegast til árangurs að nýta það sem vel hefur gengið, rýna í hvers vegna það gekk vel og síðan laga útfærslu að þeim einstaklingum (ekki hópum) sem að þarfnast aðstoðar og nota til þess áhugahvöt og jákvæðar aðferðir. Þær virka á bæði kyn og gætu jafnvel orðið þáttur í jafnréttisbaráttunni á Íslandi. Hún sýnir þó ákveðin gæfumerki þegar konur hafa nú loksins náð þeirri stöðu að verða hærra hlutfallið sem fer í háskólanám og hvað þá sem lýkur því. Mikið vona ég að sá áfangi verði til þess að í kjölfarið öðlist stelpurnar okkar þann sess í íslensku samfélagi sem þær eiga skilið og fái svo greitt í samræmi við það. Því eins og strákarnir okkar þá eru stelpurnar okkar svo sannarlega frábærar og á betri leið en við höfum áður upplifað. Í umræðunni um skólamál felst umræða um samfélagið okkar og þær áskoranir sem við tökumst á við. Við eigum að ræða um hvar við getum gert betur en við skulum þá um leið horfa til þess að lausnirnar eigum við til inni í kerfinu, þær sem ganga vel. Það eiga öll börn skilið frá okkur, strákar og stelpur! Höfundur er skólastjóri Seljaskóla í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla - og menntamál Jafnréttismál Grunnskólar Magnús Þór Jónsson Mest lesið Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Sjá meira
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun