Ísland áfram eina græna land Evrópu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. febrúar 2021 06:33 Sóttvarnastofnunin gefur kortið út vikulega og byggir tölfræðin á gögnum sem safnað er í vikunni áður. Um er að ræða þrjá litakóða sem sýna hvernig staðan er í hverju Evrópulandi fyrir sig varðandi faraldurinn. Fjórðu vikuna í röð er Ísland eina græna landið á litakóðunarkorti Sóttvarnastofnunar Evrópu vegna kórónuveirufaraldursins.
Á uppfærðu korti sem gefið var út í gær eru nokkur svæði í Noregi einnig græn líkt og í síðustu viku en lítill hluti Grikklands sem var þá grænn er nú orðinn appelsínugulur. Sóttvarnastofnunin gefur kortið út vikulega og byggir tölfræðin á gögnum sem safnað er í vikunni áður. Um er að ræða þrjá litakóða sem sýna hvernig staðan er í hverju Evrópulandi fyrir sig varðandi faraldurinn. Land eða svæði fær grænan lit ef fjórtán daga nýgengi á hverja 100 þúsund íbúa er undir 25 og hlutfall jákvæðra sýna undir 4%. Nýgengi innanlandssmita hér á landi er 1,9 og nýgengi landamærasmita 5,2 samkvæmt tölfræði covid.is frá því í gær. Sóttvarnastofnunin aðskilur ekki nýgengi landamærasmita og innanlandssmita svo samkvæmt tölfræði þeirra, sem tekin var saman í síðustu viku, er nýgengið hér 6,59. Enn eru nánast öll ríki Evrópu merkt með dökkrauðum eða ljósrauðum lit sem þýðir að nýgengi smita sé annað hvort 50 eða hærra og að hlutfall jákvæðra sýna sé 4% eða hærra eða þá að nýgengið sé hærra en 150. Staðan er nú verst í Tékklandi þar sem nýgengið mælist 968,13. Fyrir utan Ísland virðist staðan vera best í Noregi, sem er appelsínugult og grænt, Danmörku sem merkt er appelsínugul og Finnlandi sem er einni nánast allt appelsínugult. Stærstur hluti Grikklands er einnig appelsínugulur auk ítölsku eyjunnar Sardiníu. Appelsínuguli liturinn þýðir annað hvort að nýgengið sé undir 50 en hlutfall jákvæðra sé yfir 4% eða þá að nýgengið sé á bilinu 25 til 150 og hlutfall jákvæðra sýna undi 4%. Ljósgrátt þýðir síðan að löndin eru ekki með í tölfræðinni.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri fréttir Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna Sjá meira