Spennandi hráefni í eldhúsinu í Fisk-búar Fiskikóngurinn 19. febrúar 2021 08:50 Fisksalar hvetja nú landsmenn til að borða meiri fisk og standa fyrir átaki í febrúar eða Fisk-búar. Febrúar hefur verið breytt í Fisk-búar en með átakinu er fólk hvatt til þess að elda oftar fisk í matinn. Fisksalar keppast nú við að koma fiski ofan í landann en átakið Fisk-búar hefur staðið yfir allan febrúar. Með átakinu vilja fisksalar hvetja fisksveiðiþjóðina til þess að borða meiri fisk allan ársins hring og kynna sér fjölbreytta matreiðslumöguleika þessa holla sjávarfangs. Framsetning í fiskborðum er afar girnileg Fiskikóngurinn er potturinn og pannan á bak við Fisk-búar. „Kristján er auðvitað ötull talsmaður fisksins og hefur hægt og rólega fengið hinar fiskbúðirnar með sér í þetta,“ segir Magnús Guðfinnsson hjá Fiskikónginum. „Við viljum sína fólki fram á að fiskur er ekki bara bráðholl villibráð heldur einnig mjög skemmtilegt hráefni til að leika sér með í eldamennsku. Það er hægt að elda fisk á svo margvíslegan hátt." Magnús segir viðhorfið til fiskrétta sé breytt frá því sem áður var þegar soðning og fiskur í raspi voru helst á borðum. Fiskur þótti óspennandi „Ég hef selt fisk í átján ár og viðhorfið er allt annað í dag. Fyrir nokkrum árum var til dæmis ekki nokkur leið að koma ufsa neins staðar inn en nú er hann mjög vinsæll matur. Eins voru keila og langa varla talinn matur fyrir nokkrum árum. Fiskur þótti óspennandi og fólk hélt að ekkert væri hægt að gera við hann en það hefur mikið breyst með tilkomu marineringar. Einnig hefur öll tækni við vinnslu á fiski þróast og breyst og framsetning í fiskbúðunum er líka mjög flott. Matarklúbbar og matarnördar hafa líka áhrif. Fólk deilir uppskriftum og er duglegt að leita sér að innblæstri,“ segir Magnús. Tilbúna rétti er að finna í fiskverslunum sem auðvelt er að elda. Halda þurfi fólki við efnið svo næstu kynslóðir læri líka að meta fisk. Átak eins og Fisk-búar geri sitt til þess. „Fisk-búar eru svo sannarleg að leggja sitt af mörkum,“ segir Magnús. Þær fiskverslanir sem taka þátt í Fisk-búar eru Fiskikóngurinn Sogavegi, Fiskikóngurinn Höfðabakka, Fiskbúð Fúsa, Fiskbúðin Hafberg, Fiskbúð Hólmgeirs, Fiskkompany Akureyri, Fylgifiskar og Norđanfiskur. SFS hefur veitt framtakinu auglýsingastyrk. Fiskur Matur Lífið Hús og heimili Mest lesið Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Viðskipti innlent Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Viðskipti innlent Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Viðskipti innlent Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna á mánudaginn Viðskipti innlent Komi á óvart hve lítið er keppt um lægsta verðið Neytendur Kannast ekki við „lífróður“ Heimildarinnar sem fækkar útgáfudögum Viðskipti innlent Þegar ástríðan slokknar: Eins og hljóðlát kulnun Atvinnulíf Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira
Þær fiskverslanir sem taka þátt í Fisk-búar eru Fiskikóngurinn Sogavegi, Fiskikóngurinn Höfðabakka, Fiskbúð Fúsa, Fiskbúðin Hafberg, Fiskbúð Hólmgeirs, Fiskkompany Akureyri, Fylgifiskar og Norđanfiskur. SFS hefur veitt framtakinu auglýsingastyrk.
Fiskur Matur Lífið Hús og heimili Mest lesið Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Viðskipti innlent Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Viðskipti innlent Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Viðskipti innlent Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna á mánudaginn Viðskipti innlent Komi á óvart hve lítið er keppt um lægsta verðið Neytendur Kannast ekki við „lífróður“ Heimildarinnar sem fækkar útgáfudögum Viðskipti innlent Þegar ástríðan slokknar: Eins og hljóðlát kulnun Atvinnulíf Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira
Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent
Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent