Jóhann Berg og fé­lagar úr leik | Sjáðu mörkin

Junior Stanislas tryggði Bournemouth 2-0 sigur á Burnley í kvöld.
Junior Stanislas tryggði Bournemouth 2-0 sigur á Burnley í kvöld. Gareth Copley/Getty Images

Jóhann Berg Guðmundsson og liðsfélagar hans í Burnley féllu í kvöld úr leik í FA-bikarnum er liðið tapaði 0-2 á heimavelli fyrir enska B-deildarliðinu Bournemouth.

Gestirnir féllu úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og hafa átt erfitt uppdráttar í B-deildinni það sem af er tímabili. Svo mikið raunar að þjálfari liðsins var rekinn á dögunum og gamla brýnið Harry Redknapp var fenginn inn til aðstoða bráðabirgðaþjálfarann Jonathan Woodgate.

Það virðist hafa virkað en Bournemouth vann nokkuð óvæntan 0-2 útisigur í kvöld þökk sé mörkum Sam Surridge í fyrri hálfleik og vítaspyrnu Junior Stanislas undir lok leiks. Bæði mörkin má sjá hér að neðan.

Bournemouth eru þar með fyrsta liðið sem tryggir sér sæti í 8-liða úrslitum. Leikur Manchester United og West Ham United er í beinni á Stöð 2 Sport í kvöld sem og fjórir leikir á morgun og tveir á fimmtudag.


Enska bikarkeppnin, FA Cup, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. FA Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira