Handbolti

Pat­rekur: Við tókum allt í einu upp á því að fara í körfu­bolta

Andri Már Eggertsson skrifar
Patrekur tók við liði Stjörnunnar í sumar.
Patrekur tók við liði Stjörnunnar í sumar. vísir/hulda margrét

Stjarnan vann sinn annan leik í röð í kvöld. ÍBV mætti í TM höllina og var þetta háspennu leikur sem endaði með dramatík og gat ÍBV jafnað í lokasókn leiksins en það var innihaldslaus sókn sem fór í vaskinn og Stjarnan vann 30 - 29.

„Við spiluðum mjög vel, sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem við spiluðum mjög vel sóknarlega vorum ekki að kasta boltanum frá okkur, Adam var að verja vel. ÍBV kom með gott áhlaup og hefði leikurinn alveg getað endað með jafntefli,” sagði Patti hæstánægður með sigurinn.

Stjarnan vann í kvöld sinn annan sigur í röð og er þetta í fyrsta sinn á tímabilinu sem liðið tengir saman tvo sigra.

„Þetta eru frábærir strákar sem ég er með. Á móti Selfoss erum við yfir og hendum leiknum frá okkur einnig á móti FH sem við hefðum átt skilið að vinna, en í kvöld lokuðum við leiknum og er ég hrikalega kátur með strákana.”

„Mér fannst ÍBV spila vel síðustu tíu mínútur leiksins, það losnaði um Kára, ég er mjög svekktur með hvernig við breyttum allt í einu um skipulag og vill ég ekki neinn körfubolta við erum hér til að spila handbolta. Stressið er líklega þess valdandi að við fórum að drippla mikið.

„Við verðum bara að kunna að fara með forystu, okkur langar að vera yfir í leikjum, þá verða menn bara að sætta sig við það og taka stöðunum sem koma upp. Þeir spiluðu síðan með Kára Kristján í 6-0 vörn en með fullri virðingu fyrir honum þá liggur styrkur hans sóknarlega,” Sagði Patti aðspurður hvað veldur því að liðið slakar á og hleypir ÍBV inn í leikinn.

Patrekur hreyfði við sínu algenga byrjunarliði í kvöld með að byrja með Hjálmtý Alfreðsson og Starra Friðriksson í hornunum. Þetta var gert til þess að nota hópinn þar sem Patrekur hefur trú á öllu sínu liði og er dagskrá Stjörnunnar farinn að þéttast enn frekar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×