Handbolti

ÍR skoraði ekki í sextán mínútur gegn KA og klúðraði þrettán sóknum í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ekkert gekk hjá ÍR í sókninni í seinni hálfleik gegn KA.
Ekkert gekk hjá ÍR í sókninni í seinni hálfleik gegn KA. vísir/vilhelm

ÍR átti í miklum vandræðum í sókninni gegn KA í Olís-deild karla í gær. ÍR-ingar töpuðu leiknum með helmingsmun, 32-16, og skoruðu ekki í sextán mínútur í seinni hálfleik.

Sóknarleikur ÍR var ekki burðugur í fyrri hálfleik þar sem liðið skoraði aðeins níu mörk. Hann var hins vegar öllu verri í seinni hálfleiknum.

Á 44. mínútu skoraði Dagur Sverrir Kristjánsson fimmtánda mark ÍR og minnkaði muninn í sjö mörk, 22-15. Það reyndist næstsíðasta mark ÍR-inga í leiknum.

Breiðhyltingar skoruðu ekki aftur fyrr en á lokamínútunni. Ólafur Haukur Matthíasson batt þá endi á rétt tæplega sextán mínútna markaþurrð ÍR þegar hann minnkaði muninn í 32-16. Þá voru ÍR-ingar tveimur mönnum fleiri.

Á þessum sextán mínútna markalausa kafla fóru þrettán sóknir hjá ÍR í röð. ÍR-ingar áttu átta misheppnuð skot og töpuðu boltanum sex sinnum. Nicholas Satchwell, markvörður KA-manna, reyndist ÍR-ingum mjög erfiður og varði sjö skot á þessum kafla. Færeyingurinn varði alls tuttugu skot í leiknum, eða 56 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig.

„Það fór bara flest allt úrskeiðis hér í dag. Við erum með fyrstu tíu mínúturnar og svo bara gefumst við upp. Við gerum ekki það sem fyrir er lagt. Það var ákveðið leikplan sem við ætluðum að fara eftir og við förum bara ekki eftir því. Við bara þorum ekki. KA strákarnir taka á okkur og við bara bökkum,“ sagði Kristinn Björgúlfsson, þjálfari ÍR, við Vísi eftir leikinn í KA-heimilinu í gær.

„Sóknarleikurinn er vandamálið. Við gerum ekki það sem er fyrir lagt. Við höldum í alvörunni að við getum komið driplandi á og sótt í okkur mann í stað þess að koma á ferðinni. Þetta eru engin geimvísindi.“

ÍR hefur tapað öllum sjö leikjum sínum í Olís-deildinni með samtals 61 marks mun.

Næsti leikur ÍR er gegn Selfossi í Austurberginu á fimmtudaginn.


Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×