Handbolti

Alfreð steig stríðsdans eftir besta leik landsliðsins frá upphafi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hluti af umfjöllun Fréttablaðsins um frægan leik Íslands og Frakklands á HM 2007. Á myndinni stígur Alfreð Gíslason stríðsdans.
Hluti af umfjöllun Fréttablaðsins um frægan leik Íslands og Frakklands á HM 2007. Á myndinni stígur Alfreð Gíslason stríðsdans. Úr Fréttablaðinu 23. janúar 2007

Strákarnir í íslenska handboltalandsliðinu mæta Frökkum í öðrum leik sínum í milliriðli III á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi í dag. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.

Ísland tapaði fyrir Sviss, 20-18, í fyrradag á meðan Frakkland sigraði Alsír, 29-26. Íslendingar eru í 4. sæti milliriðilsins með tvö stig en Frakkar eru með sex stig á toppi hans.

Ísland og Frakkland hafa sextán sinnum mæst á stórmótum í gegnum tíðina. Tölfræðin er Frökkum í hag. Þeir hafa unnið níu leiki, Íslendingar fjóra og þrisvar sinnum hefur orðið jafntefli.

Hér fyrir neðan má lesa um fjóra eftirminnilega leiki Íslands og Frakklands á stórmótum.

Ísland 20-24 Frakkland, ÓL 1992

Íslendingar komust óvænt inn á Ólympíuleikana í Barcelona 1992 eftir að Júgóslövum var meinuð þátttaka.

Ísland fór ekki alveg jafn langt og Danmörk á EM 1992 í fótbolta, þar sem Danir urðu Evrópumeistarar eftir að hafa komið inn á mótið fyrir Júgóslava, en átti samt frábært mót.

Ísland endaði í 2. sæti A-riðils og komst þar með í undanúrslit þar sem andstæðingurinn var Samveldið. Eftir að hafa verið í góðri stöðu misstu Íslendingar móðinn á lokakaflanum og töpuðu, 19-23.

Í leiknum um bronsið laut Ísland svo í lægra haldi fyrir Jackson Richardson og félögum í franska landsliðinu, 20-24. Fjórða sætið varð því niðurstaðan sem er næstbesti árangur Íslands á Ólympíuleikum.

Mörk Íslands: Valdimar Grímsson 5/3, Gunnar Gunnarsson 4, Héðinn Gilsson 3, Júlíus Jónasson 3, Konráð Olavsson 3/1, Jakob Sigurðsson 1, Birgir Sigurðsson 1.

Ísland 32-24 Frakkland, HM 2007

Eftir óvænt tap fyrir Úkraínu í öðrum leik sínum á HM 2007 þurfti Ísland að vinna Frakkland í lokaleik sínum í riðlakeppninni til að komast áfram í milliriðil. Og það gekk eftir.

Íslenska liðið vann stórsigur, 32-24, í líklega besta leik þess í sögunni. Hvergi var veikan blett að finna og hver einasti leikmaður sem kom inn á spilaði eins og kóngur.

Ísland var tíu mörkum yfir í hálfleik, 18-8, og gaf ekkert eftir í seinni hálfleik, nema þegar upp komst að liðið mátti ekki vinna of stóran sigur því hefði það ekki tekið stig með sér í milliriðil. Á endanum skildu átta mörk liðin að, 32-24.

Alfreð Gíslason, þjálfari Íslands, steig frægan stríðsdans þegar lokaflautið gall á sínum gamla heimavelli í Magdeburg og íslensku leikmennirnir fögnuðu vel og innilega með fjölmörgum íslenskum stuðningsmönnum í keppnishöllinni.

Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson 6/4, Logi Geirsson 5, Guðjón Valur Sigurðsson 5, Snorri Steinn Guðjónsson 4, Alexander Petersson 3, Markús Máni Michaelsson 3, Sigfús Sigurðsson 2, Ásgeir Örn Hallgrímsson 2, Vignir Svavarsson 1, Ragnar Óskarsson 1/1.

Ísland 23-28 Frakkland, ÓL 2008

Eftir frækinn sigur á Spáni, 36-30, komst Ísland í úrslitaleik Ólympíuleikanna í fyrsta sinn þar sem Frakkar voru andstæðingurinn.

Því miður áttu Íslendingar ekki mikla möguleika í þessum stærsta leik sínum frá upphafi. Eftir jafnar upphafsmínútur náðu Frakkar undirtökunum og í hálfleik var munurinn fimm mörk, 10-15.

Frakkar sigldu sigrinum svo örugglega heim í seinni hálfleik, unnu 23-28 sigur og urðu Ólympíumeistarar í fyrsta sinn. Íslendingar fengu hins vegar silfurmedalíu sem er enn einu verðlaun sem íslenskt lið hefur unnið á Ólympíuleikum.

Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson 5, Arnór Atlason 4, Snorri Steinn Guðjónsson 4/3, Logi Geirsson 3, Guðjón Valur Sigurðsson 3, Alexander Petersson 2, Sigfús Sigurðsson 1, Róbert Gunnarsson 1.

Ísland 30-29 Frakkland, ÓL 2012

Íslendingar unnu alla leiki sína í riðlakeppninni á Ólympíuleikunum í London 2012, þar á meðal gegn Frökkum í miklum spennuleik, 30-29.

Franska liðið var ógnarsterkt á þessum tíma og var handhafi allra stærstu titlanna, var heims-, Evrópu- og Ólympíumeistari. Íslenska liðið hefur sömuleiðis sjaldan verið jafn sterkt og það var á þessum tíma.

Íslendingar voru lengst af með frumkvæðið en aðeins einu marki munaði á liðunum í hálfleik, 16-15. Spennan hélt áfram í seinni hálfleik og úrslitin réðust ekki fyrr en undir blálokin.

Alexander Petersson kom Íslendingum í 30-28 með sjötta marki sínu en Frakkar minnkuðu muninn og fengu tækifæri til að jafna leikinn í lokasókn sinni. Björgvin Páll Gústavsson sá hins vegar við Daniel Narcisse og Ísland fagnaði sigri, 30-29.

Mörk Íslands: Alexander Petersson 6, Aron Pálmarsson 5, Guðjón Valur Sigurðsson 5, Ólafur Stefánsson 4/1, Róbert Gunnarsson 4, Arnór Atlason 3, Kári Kristján Kristjánsson 1, Ingimundur Ingimundarson 1,  Snorri Steinn Guðjónsson 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×