Dagur með Japan á ókunnum slóðum Sindri Sverrisson skrifar 19. janúar 2021 15:59 Dagur Sigurðsson einbeittur á hlilðarlínunni í leiknum gegn Angóla í dag. EPA-EFE/Hazem Gouda Dagur Sigurðsson er kominn með Japan í milliriðla á HM í handbolta í Egyptalandi. Það sem meira er, liðið tekur þangað með sér eitt stig eftir jafntefli við Króatíu.
Japan tryggði sér sæti í milliriðlakeppninni með sigri á Angóla í dag, 30-29. Japan fékk þar með þrjú stig í riðlinum en Angóla ekkert. Króatía er með þrjú stig og Katar fjögur en þau lið mætast síðar í dag. Engu að síður er ljóst að Króatía fer ekki með fullt hús stiga í milliriðilinn vegna jafnteflisins við Japan. Í milliriðlinum mæta Dagur og hans menn liðum Danmerkur og Argentínu, auk annað hvort Kongó eða Barein sem leikur undir stjórn Halldórs Jóhanns Sigfússonar. Barein og Kongó mætast nú síðdegis. Japan hefur ekki komist upp úr sínum riðli á HM síðan á heimavelli árið 1997 þegar liðið komst í 16 liða úrslit. Á síðasta heimsmeistaramóti varð liðið í 24. sæti eða því neðsta, en nú eru 32 þátttökuþjóðir á HM. Japan var 16-12 yfir í hálfleik gegn Angóla í dag, eftir að hafa skellt í lás síðustu tíu mínúturnar fram að hléi. Angóla kom sér hins vegar inn í leikinn þegar á leið seinni hálfleik og jafnaði metin í 27-27 þegar enn voru sjö mínútur eftir. Japan, sem dugði jafntefli til að komast áfram, var þó örlítið sterkara á lokasprettinum og landaði sigri.
HM 2021 í handbolta Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Sjá meira