Viðskipti innlent

Spari­­­­­sjóður gerir sátt vegna ó­­­full­­­nægjandi að­­­gerða gegn fjár­­­mögnun hryðju­­­verka

Eiður Þór Árnason skrifar
Sparisjóður Strandamanna á Hólmavík.
Sparisjóður Strandamanna á Hólmavík. Vísir/vilhelm

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands og Sparisjóður Strandamanna hafa gert með sér samkomulag um sátt vegna brota sparisjóðsins á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Lýkur málinu með 2,5 milljóna króna sektargreiðslu en Fjármálaeftirlitið taldi annmarka vera á flestum þeim aðgerðum sem teknar voru til skoðunar hjá sparisjóðnum.

Var það niðurstaða vettvangsathugunar að áhættumat sparisjóðsins, framkvæmd áreiðanleikakannana, reglubundið eftirlit, stefna og verkferlar, eftirlit með því hvort viðskiptamenn væru á þvingunarlistum og eftirliti með einstaklingum í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla, væri ekki í samræmi við þær kröfur sem fram koma í lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Gera sérstakar athugasemdir við aðila sem innheimtir smálán

Samkomulagið kveður meðal ananrs á um að alvarlegir annmarkar hafi verið varðandi könnun áreiðanleika upplýsinga um tiltekinn viðskiptamann sem sér um innheimtu smálána „vegna þeirrar auknu áhættu sem þar var talin vera til staðar,“ eins og það er orðað í samkomulaginu.

Nokkuð hefur verið fjallað um það að Sparisjóður Strandamanna hafi veitt innheimtufyrirtækinu Almennri innheimtu ehf. aðgang að greiðslumiðlunarkerfi bankanna eftir að bankar höfðu lokað á smálánafyrirtækin. Hafa Neytendasamtökin meðal annars gagnrýnt sparisjóðinn fyrir viðskipti sín við innheimtufyrirtækið sem hafi innheimt ólögleg smálán í gegnum reikning sparisjóðsins.

Í ágúst í fyrra tilkynnti Sparisjóður Strandamanna að hann hafi gripið til ráðstafana til að koma í veg fyrir að innheimta í tengslum við smálánafyrirtæki fari fram í gegnum reikninga sjóðsins. Þá hafi jafnframt „einhverjum samböndum“ við viðskiptavini sem komi að smálánastarfsemi verið sagt upp.

Ekki hrifin af skjalageymslunni

Líkt og áður segir gerir Fjármálaeftirlitið víðtækar athugasemdir við varnir sparisjóðsins gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Ein þeirra snýr að skjalageymslu fjármálastofnunarinnar. 

„Athugun Fjármálaeftirlitsins leiddi í ljós að öll gögn í tengslum við áreiðanleikakannanir viðskiptamanna voru geymd á pappírsformi í möppum í eldvörðum skjalaskáp hjá málsaðila. Einu áreiðanleikakannanirnar sem voru vistaðar rafrænt voru þær sem höfðu verið framkvæmdar á árinu 2019.“

Er það mat Fjármálaeftirlitsins að miðað við fjölda viðskiptavina verði ekki séð að framangreind skjalavarsla fullnægi skilyrðum laganna um að geta brugðist skjótt við beiðnum eftirlitsaðila um upplýsingar.  

Öfluðu ekki upplýsinga um raunverulega eigendur

Með samkomulagi aðilanna viðurkennir Sparisjóður Strandamanna að hann hafi með háttsemi sinni brotið gegn þeim áðurnefndum lögum auk laga um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna, með því að hafa ekki haft til staðar viðeigandi eftirlitskerfi til að meta hvort viðskiptamenn væru á lista yfir þvingunaraðgerðir. Sparisjóðnum var þó ekki gerð sekt vegna síðarnefnda brotsins.

Alvarlegustu annmarkarnir að mati Fjármálaeftirlitsins sneru að framkvæmd áreiðanleikakannana og þá sérstaklega öflun upplýsinga um raunverulega eigendur lögaðila. Í meirihluta tilfella hafði ekki verið aflað upplýsinga um raunverulega eigendur eða þær upplýsingar ekki verið sannreyndar.

Fáir erlendir viðskiptavinir

Á þeim tíma þegar vettvangsathugunin var framkvæmd var mikill meirihluti viðskiptavina sparisjóðsins aðilar sem búsettir voru á starfssvæði hans eða annars staðar á landinu. Erlendir viðskiptavinir sparisjóðsins voru fáir og enginn þeirra frá áhættusömum ríkjum. 

Fram kemur í samkomulaginu að við mat á alvarleika brots á lagagrein sem sneri að gerð áhættumats hafi verið tekið tillit til þess að um væri að ræða nýja skyldu sem útfærð var nánar með reglugerð fjórum mánuðum áður en vettvangsathugun Fjármálaeftirlitsins fór fram. 

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Sparisjóðsstjóri neitar ábyrgð

Neytendasamtökin og VR hvetja lántakendur til að hætta að greiða af smálánaskuldum nema að fá skýra sundurliðun á kröfum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×