Atvinnulíf

Átakanlegar stundir fylgja starfinu í Farsóttarhúsinu

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Gylfi Þór Þórsteinsson og hundurinn Trausti. 
Gylfi Þór Þórsteinsson og hundurinn Trausti.  Vísir/Vilhelm

Síðustu vikur höfum við séð Gylfa Þór Þórsteinsson reglulega í fréttum, enda sinnir hann nú því starfi að vera umsjónarmaður Farsóttarhúsa. Gylfi segist í raun aldrei vita hvað bíður hans í vinnunni. Starfið er samt gefandi og í raun það skemmtilegasta sem Gylfi hefur sinnt til þessa. Hins vegar fylgja því einnig átakanlegar stundir. Til dæmis þegar hann þurfti að fylgja konu að kveðja unnusta sinn í síðasta sinn.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég vakna alla daga hálf sjö, þá segir Google Home mér hvað klukkan er, kveikir ljósin og segir mér hvað er framundan.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Fyrsta sem ég geri er að staulast fram úr, og fá mér kaffi, hleypa hundinum út og svo hefst teygju æfing dagsins. Hana hef ég stundað frá sirka þriggja ára aldri en felst aðallega í því að teygja mig eftir fötunum og reyna að klæða mig skammlaust. 

Þrátt fyrir gífurlega æfingu í þessum teygjum reynist það erfiðara með hverju árinu að fara í sokkana.“

Strengdir þú áramótaheit?

„Þau voru nokkur að venju, eitt af þeim er að hætta að ganga í sokkum, sbr. svarið hér áðan, vera duglegri í hestamennskunni og að gera sjálfan mig og það hús sem ég rek óþarft með því að útrýma Covid.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Verkefnið þessa dagana er að hýsa þá sem sýktir eru af Covid og geta ekki verið í einangrun heima hjá sér, eða eiga jafnvel hvergi heima. Hér hafa verið um 450 sýktir einstaklingar sem hefðu af öðrum kosti lamað Landspítalann, verkefnið er jafn fjölbreytt og gestirnir eru margir. 

Sumir þurfa litla sem enga umönnun á meðan aðrir þurfa mikla. Þrátt fyrir mikla vinnu sem er allan sólarhringinn, er þetta ein skemmtilegasta vinna sem ég hef verið í. Starfsfólkið allt sem verið hefur með mér yndislegt og hér er mikið hlegið, þótt erfiðar stundir séu óneitanlega inn á milli líka.“

Gylfi Þór segir starfið í Farsóttarhúsinu mjög gefandi og skemmtilegt þótt vissulega fylgi því líka átakanlegar stundir.Vísir/Vilhelm

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Þessa vinnu er lítið hægt að skipuleggja, ég veit aldrei hvað bíður mín, ég hef þurft að sitja yfir mjög veiku og hræddu fólki, ég hef þurft að leika við börn á meðan móðir þeirra fær að hvílast, ég hef fylgt syrgjandi ekkju til að kveðja unnustan sinn í hinsta sinn eða ég hef verið við það að slá persónulegt met mitt í Angry Birds leiknum í símanum mínum.

Dagarnir eru aldrei eins, en ferlarnir eru skýrir svo ég veit alltaf hvað ég þarf að gera þegar ný verkefni eða ævintýri koma á mitt borð.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég vandist á það þegar ég var með morgunútvarpið á árum áður að fara að sofa kl. 23, það virðist virka því ég sofna alltaf og hef hingað til náð að vakna aftur. Legg því ekkert í að breyta því, nema í undantekningar tilfellum.“


Tengdar fréttir

Fær sér stundum Coco Puffs í desert eftir Cheeriosið

Hildur Árnadóttir stjórnarmaður og ráðgjafi fær sér stundum Coco Puffs í desert eftir Cheeriosið á morgnana. Hún segir aðventuna frekar rólega í ár vegna Covid en í vinnunni tókst í vikunni að undirrita samkomulag um sameiningu félaga þannig að úr verður eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Markmið sameiningarinnar er að vera tilbúin þegar öflug viðspyrna hefst og ferðamenn fara að flykkjast til landsins á ný. 

Kók og súkkulaði í morgunmat í 45 ár samfleytt

Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Kemi, segist líklegri til að auka við hreyfingu en að fara að borða hollar. Hann hefur fengið sér kók og súkkulaði í morgunmat í 45 ár og segist alveg mæla með því. Hermann skipuleggur vinnuna svolítið út frá árstíðum en þetta árið hefur verið mikið að gera vegna Covid.

Er stundum morgunfúl en dreymir um að vakna eldhress

Rósa Guðný Þórsdóttir leikkona og leikstjóri er gestur kaffispjallsins þessa helgina. Hún viðurkennir að vera stundum morgunfúl en dreymir um að vakna eldhress á morgnana og dansa fram í eldhús.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×