Atvinnulíf

Fær sér stundum Coco Puffs í desert eftir Cheeriosið

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Hildur Árnadóttir.
Hildur Árnadóttir. Vísir/Vilhelm

Hildur Árnadóttir stjórnarmaður og ráðgjafi fær sér stundum Coco Puffs í desert eftir Cheeriosið á morgnana. Hún segir aðventuna frekar rólega í ár vegna Covid en í vinnunni tókst í vikunni að undirrita samkomulag um sameiningu félaga þannig að úr verður eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Markmið sameiningarinnar er að vera tilbúin þegar öflug viðspyrna hefst og ferðamenn fara að flykkjast til landsins á ný. 

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Virka daga vakna ég oftast um klukkan 7:20, þá er maðurinn minn mjög oft búið að snúsa klukkuna einu sinni til tvisvar.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

Ég vildi óska þess að ég gæti sagt að flesta morgna byrjaði ég á því að hugleiða og fara svo í ræktina en mér finnst best að byrja á því að fá mér vatnsglas, cheerios með banana og fjörmjólk, fæ mér stundum pínu Coco Puffs í desert og svo espressó. Á meðan fer ég yfir eiginlega alla fjölmiðla dagsins, bæði blöð, vefi og útvarp.“

Ertu mikið jólabarn?

„Eiginmaðurinn segir að ég sé mikið jólabarn en ég held að það séu allir svona innstilltir. Þetta birtist helst í því að ég hef í gegnum tíðina safnað ýmsu jólaskrauti og skreyti húsið, núna er ég aðeins að reyna að minnka skrautið enda komin í minna húsnæði.

Við höfum í mörg ár, nema núna, verið með aðventuboð fyrir fjölskyldu eiginmannsins aðra helgi í aðventu og þá er ég búin að skreyta allt nema jólatréð. Svo bökum við flatkökur í aðstöðu sem við höfum í Vík, mamma sér til þess að fjölskyldan steikir laufabrauð, svo er oft eitthvað föndur eða konfekt, rauðkál og biscotti sem ég nota til gjafa.

Jólin sjálf eru frekar róleg með góðum mat, bóklestri, gönguferðum auk þess sem okkur finnst gaman að púsla.“

Hildur er mikið í verkefnum þessa dagana til að undirbúa næsta ár. Hún situr í nokkrum stjórnum félaga og er auk þess formaður Jafnvægisvogar FKA. Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Ég er er í ýmsum aðskildum verkefnum, til dæmis er ég formaður Jafnvægisvogar FKA, við vorum með flotta ráðstefnu og viðurkenningarhátíð í nóvember og nú erum við að skoða hvernig við höldum áfram að vekja athygli á þeim málum.

Þessa dagana eru það þó helst verkefni á sviði stjórnarsetu en ég er stjórnarformaður hjá Íslandsstofu og Eldey auk setu í stjórn Sjóvá og desember mótast af því að ljúka áætlanagerð og undirbúning af ýmsu tagi fyrir næsta ár.

Í ferðaþjónustunni höfum við staðið í ströngu undanfarna mánuði enda hefur heimsfaraldur kórónaveiru skapað ýmsar áskoranir en að sama skapi tækifæri til hagræðingar og endurskipulagningar.

Í þessari viku náðum við þeim merka áfanga að undirrita samkomulag um sameiningu félaga í eignasafni Eldeyjar og Kynnisferða. Með þeirri sameiningu verður til eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins þar sem markmiðið er að vera betur í stakk búin fyrir öfluga viðspyrnu þegar ferðalög hefjast af fullum þunga.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég hef löngum sagt að ég sé mikil listakona og þá á ég ekki við að ség sé handlagin eða listfeng. 

Ég lærði upphaflega endurskoðun og þar lærir maður að skipuleggja sig fram í tímann. Ég er búin að læra að með því að brjóta verkefni niður í smærri þætti þá gengur betur að ljúka þeim enda er svo gott að haka út af listanum.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég er eiginlega meiri kvöldmanneskja en morgun, er oft að lesa einhver skjöl á kvöldin en oftast er farið í rúmið rétt fyrir miðnætti. Mér finnst reyndar ósköp notalegt að dreifa huganum með því að horfa á einhvern sjónvarpsþátt þannig að líklega fer ég ekki að sofa fyrr en upp úr miðnætti.“


Tengdar fréttir

Kók og súkkulaði í morgunmat í 45 ár samfleytt

Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Kemi, segist líklegri til að auka við hreyfingu en að fara að borða hollar. Hann hefur fengið sér kók og súkkulaði í morgunmat í 45 ár og segist alveg mæla með því. Hermann skipuleggur vinnuna svolítið út frá árstíðum en þetta árið hefur verið mikið að gera vegna Covid.

Er stundum morgunfúl en dreymir um að vakna eldhress

Rósa Guðný Þórsdóttir leikkona og leikstjóri er gestur kaffispjallsins þessa helgina. Hún viðurkennir að vera stundum morgunfúl en dreymir um að vakna eldhress á morgnana og dansa fram í eldhús.

„Allt of mikill tími í þinginu sem fer í ekki neitt“

Þorsteinn Víglundsson segir þrjá espresso þurfa alla morgna til að rífa sig í gang. Honum leiðist tímasóun og segir hana of mikla á þingi. Að sitja á þingi sé þó mikill heiður. Í forstjórastarfinu í dag eru það hins vegar umhverfismálin sem eru hvað brýnust.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×