Viðskipti innlent

Segir fjörutíu prósenta hækkun álverðs gríðarlega mikilvæga fyrir efnahagslífið

Kristján Már Unnarsson skrifar
Gunnar Guðlaugsson er forstjóri Norðuráls og stjórnarformaður Samáls, samtaka álframleiðenda á Íslandi.
Gunnar Guðlaugsson er forstjóri Norðuráls og stjórnarformaður Samáls, samtaka álframleiðenda á Íslandi. Arnar Halldórsson

Heimsmarkaðsverð á áli hefur rokið upp á undanförnum mánuðum og hækkað um ríflega fjörutíu prósent frá því verðið var lægst síðastliðið vor. Stjórnarformaður Samáls segir þetta gríðarlega mikilvægt fyrir efnahag landsins.

Eftir að ferðaþjónustan hrundi er áliðnaður á ný orðinn næst stærsta útflutningsgrein landsins á eftir sjávarútvegi. Það blés hins vegar ekki byrlega fyrir greininni í vor þegar álverð fór niður undir 1.400 dollara á tonnið. En dæmið snerist við í júní og síðan hefur álverð hækkað jafnt og þétt og stendur núna í rúmlega 2.000 dollurum.

Álver Norðuráls á Grundartanga.Vísir/Vilhelm

„Auðvitað er þetta bara mjög jákvætt að álverð hefur hækkað og meðalverð ársins kannski ekki alslæmt,“ segir Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls og stjórnarformaður Samáls, í viðtali í fréttum Stöðvar 2.

„Þetta bara orsakast af aukinni eftirspurn, bæði í Evrópu og Asíu, og kannski ekki síst í Kína.“

Þá hafi fréttir af bóluefni haft jákvæð áhrif.

„Heimurinn fyllist bjartsýni og þá fer fólk að eyða og hagvöxtur eykst og það hefur jákvæð áhrif á álverð,“ segir Gunnar.

Frá álveri Rio Tinto Alcan í Straumsvík.Mynd/Stöð 2.

Þrjú álver eru hérlendis. ÍSAL í Straumsvík reis fyrst, síðan álver Norðuráls á Grundartanga en Alcoa Fjarðaál í Reyðarfirði er yngst. En hvað þýðir svona verðhækkun fyrir íslenskan efnahag?

„Þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir íslenskan efnahag. Álframleiðsla er auðvitað stór hluti af íslensku efnahagslífi þannig að þetta hefur jákvæð áhrif á okkur öll,“ svarar stjórnarformaður samtaka álframleiðenda.

Þessi mikla hækkun hefur bein áhrif á tekjur Landsvirkjunar en 35 prósent af heildarorkusölu fyrirtækisins er beintengd heimsmarkaðsverði á áli, samkvæmt upplýsingum Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, í dag.

Álver Alcoa-Fjarðaáls á Reyðarfirðivísir/valli

Gunnar, sem sjálfur stýrir Norðuráli á Grundartanga, segir erfitt að spá um hvort verðhækkunin haldist.

„En hins vegar erum við bjartsýn á það að eftirspurn eftir áli mun halda áfram að aukast. Þegar hagvöxtur eykst þá eykst eftirspurn eftir rafbílum og flugvélum og það eru jú vörur sem ál er notað í að stórum hluta.“

Gunnar Guðlaugsson var ráðinn forstjóri Norðuráls vorið 2019 eftir að hafa starfað sem framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu í áratug.Arnar Halldórsson

Hann segir áliðnaðinn mikilvæga stoð í íslensku efnahagslífi.

„Það hefur sýnt sig, bæði í gegnum þessa kreppu og fyrri kreppur, að þetta er kannski sú stoð sem svona aðrar kreppur hafa minni áhrif á. Og við höfum haldið uppi atvinnu og framleiðslu í gegnum þessa kreppu,“ segir stjórnarformaður Samáls.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×