Veiði lauk í Setbergsá á Skógarströnd um miðjan mánuðinn. Á vef SVFR segir að líkt og víða voru veiðitölur í lægri kantinum í þessari nettu laxveiðiá.
Í Setbergsá er veitt á tvær dagsstangir og áin hvíld alla fimmtudaga í sumar. Veiðitímabil er frá 15. júlí til 15. september og eins og áður segir er veitt sex daga vikunnar. Kvóti er tveir laxar á dagsstöng og voru nokkur holli í sumar sem nýttu fullan kvóta sinn.
Heildarveiði eftir sumarið eru 53 laxar sem skiptast þannig eftir mánuðum:
Júlí 7 laxar; ágúst 26 laxar og í september 20 laxar.
"Setbergsá er hreinræktuð smálaxaá, og er allur aflinn frá fjórum upp í sex pund. Að sama skapi má segja að leitun sé að hærra hlutfalli maðkaveiddra laxa á landsvísu, enda hentar áin mun betur fyrir þá sem brúka það agn. Af 53 löxum veiddust einvörðungu tveir á flugu - aðrir féllu fyrir möðkum veiðimanna," segir á vef SVFR
svavar@frettabladid.is
