Viðskipti innlent

CCP gæti orðið af hundrað milljónum

Þótt gestir á Fanfest Eve Online hafi verið sáttir þá er annað uppi á teningnum um þessar mundir; yfir fimm þúsund notendur leiksins hafa sagt skilið við hann í mótmælaskyni.Fréttablaðið/Vilhelm
Þótt gestir á Fanfest Eve Online hafi verið sáttir þá er annað uppi á teningnum um þessar mundir; yfir fimm þúsund notendur leiksins hafa sagt skilið við hann í mótmælaskyni.Fréttablaðið/Vilhelm
Samkvæmt frétt á vefsíðunni develop-online.net hafa rúmlega 5.500 notendur íslenska tölvuleiksins EVE Online óskað eftir því í mótmælaskyni að aðgangi þeirra verði lokað. Þetta myndi þýða að CCP, sem hannar og rekur tölvuleikinn, yrði af 115 milljónum íslenskra króna í áskriftargjöld.

Í fréttinni er vísað í skjal á netinu en það hýsir þá notendur sem hafa óskað eftir því að aðgangi þeirra verði lokað. „Við ætlum ekki að tjá okkur um þetta mál fyrr en við höfum rætt við Council of Stellar Management eða CSM. En þú getur haft samband við fjölmiðlafulltrúa fyrirtækisins í gegnum tölvupóst,“ segir Arnar Hrafn Gylfason, framleiðandi hjá CCP.

Valeri Massey, fjölmiðlafulltrúi CCP, vísaði í tölvupósti til blaðsins á blogg Arnars Hrafns, eveonline.com/devblog, en tók að öðru leyti undir orð hans, fyrirtækið myndi ekki tjá sig um málið fyrr en eftir helgi. Hún vildi því ekki staðfesta ofangreindar tölur. Samkvæmt blogginu eiga fundirnir með hinum svokölluðu Council of Stellar Management að fara fram í dag og á morgun en þeir eru tengiliðir EVE Online-svæðisins við framleiðendur leiksins.

Forsaga málsins er sú að notendur EVE Online eru æfir vegna innanhússfréttabréfs sem lekið var á netið. Þar kom fram sú hugmynd að notendur gætu notast við venjulega peninga til að kaupa sér geimskip og hæfileika sem aðrir notendur hafa eytt ómældum tíma í að byggja upp. Hugleiðingin var sett fram í fréttabréfinu í kjölfar þess að CCP setti í sölu alls kyns aukahluti inni í leiknum sem hafa þó engin áhrif á framgang hans. - fgg


Tengdar fréttir

Óánægja á meðal Eve Online spilara

Mikil óánægja er meðal þeirra sem spila fjölspilunarleikinn EVE Online, verðmætustu afurð íslenska tölvuleikjafyrirtækisins CCP, en þessi óánægja birtist á spjallborði leiksins á veraldarvefnum, að því er fram kemur í DV.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×