Redknapp tekur undir með Campbell Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. desember 2007 18:37 Harry Redknapp, stjóri Portsmouth. Nordic Photos / Getty Images
Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, hefur tekið undir með Sol Campbell, leikmanni liðsins, sem á dögunum sagði að munnsöfnuður áhorfenda knattspyrnuleikja væri fyrir neðan allar hellur. Campbell er ekki í miklum metum hjá stuðningsmönnum Tottenham síðan hann fór frá liðinu til erkifjendanna í Arsenal fyrir nokkrum árum. Nú leikur hann hins vegar með Portsmouth en þegar liðin mættust um helgina létu stuðningsmenn Tottenham öllum illum látum gagnvart honum. Redknapp fékk sjálfur að kenna á ljótum munnsöfnuði áhorfenda er stuðningsmenn Aston Villa létu hann heyra það fyrir skemmstu. „Hvernig eigum við að geta stöðvað þetta?" spurði Redknapp. „Hvernig er hægt að færa það í lög að fullorðnir karlmenn eigi ekki að haga sér á þennan máta?" „Stuðningsmennirnir segja að þar sem þeir borguðu sig inn á leikinn sé það þeirra réttur að láta svona en þessi hegðun er algjörlega óásættanleg." Redknapp hefur áður kvartað undan þessu á tímabilinu og það hafa þeir Alex Ferguson og Avram Grant einnig gert. Campbell var nóg boðið eftir helgina og hringdi sjálfur í fréttastofu BBC í gær þar sem hann sagði að enska knattspyrnusambandið þyrfti að bregðast við þessum vanda. „Það verður erfitt að fá áhorfendur til að hætta þessu," sagði Campbell. „Þetta gerðist ekki oft þegar ég fór sjálfur ungur á völlinn með pabba mínum en nú gerist þetta æ oftar."
Tengdar fréttir Keane er ósammála Campbell Robbie Keane, fyrirliði Tottenham, er ekki sammála fullyrðingum varnarmannsins Sol Campbell um að munnsöfnuður áhorfenda í ensku úrvalsdeildinni sé genginn fram úr hófi. 20. desember 2007 12:36 Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira
Keane er ósammála Campbell Robbie Keane, fyrirliði Tottenham, er ekki sammála fullyrðingum varnarmannsins Sol Campbell um að munnsöfnuður áhorfenda í ensku úrvalsdeildinni sé genginn fram úr hófi. 20. desember 2007 12:36