Viðskipti erlent

Líf Norwegian hangir á blá­þræði

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Aðgerðapakkinn sem Norwegian Air kynnti fyrir hluthöfum félagsins heyrir upp á 175,2 milljarða krónur.
Aðgerðapakkinn sem Norwegian Air kynnti fyrir hluthöfum félagsins heyrir upp á 175,2 milljarða krónur. EPA/Toms Kalnins

Örlög Norwegian voru ákveðin í gær en hluthafar greiddu atkvæði í gærkvöldi um það hvort björgunarpakki sem flugfélagið lagði til yrði samþykktur. Hluthafar áttu fund klukkan 16:00 að staðartíma í gær til að kjósa um pakkann en það liggur fyrir að hlutafé félagsins verði uppurið um miðjan maí eins og greint er frá á vef fréttastofu Reuters.

Flugfélagið sendi út nýtt, og loka, tilboð klukkan 13:59 í gær og gaf hluthöfum frest til 21:00 til að meta stöðuna. Síðan þá hefur ekkert heyrst frá félaginu um niðurstöðu málsins.

„Við höfum engar upplýsingar til að miðla að svo stöddu. Við munum gefa út tilkynningu til kauphallarinnar í Ósló þegar við getum,“ sagði talskona Norwegian.

Til að þrauka þarf félagið að breyta 1,2 milljörðum dollara, sem samsvarar um 175,2 milljörðum íslenskra króna, af skuldum í hlutafé auk þess sem stærstur eignarhluti í félaginu mun vera í höndum skuldabréfahafa og leigusala, verði aðgerðapakkinn samþykktur af hluthöfum og skuldareigendum.

Verði pakkinn samþykktur þurfa leigusalar að lýsa yfir stuðningi við hann fyrir sunnudag og skuldabréfahafar þurfa að samþykkja tillöguna á fundi á mánudag. Verði aðgerðapakkinn samþykktur mun norska ríkið veita félaginu 260 milljóna dollara lán, sem samsvarar tæpum 38 milljörðum króna. Það veltur þó á því hvort hlutafé félagsins eykst.

Flugfélagið varaði við því þann 27. apríl síðastliðinn að færi félagið í gjaldþrot myndu flestir kröfuhafar fá lítið úr þrotabúinu. Þá greindu einhverjir hluthafar frá því fyrir fundinn í gær að þeir myndu styðja tillöguna.

Flugfélagið hefur á síðustu árum orðið þriðja stærsta lággjaldaflugfélag í Evrópu og stærsta erlenda flugfélagið sem flýgur til New York og annarra stórborga í Bandaríkjunum en það hefur einnig safnað upp skuldum upp á nærri 8 milljarða dollara, eða um 1.168 milljarða íslenskra króna.

Þá hafði flugfélagið gert ráðstafanir til að skera niður útgjöld og fækka ferðum áður en kórónuveirufaraldurinn braust út, í von um að skila hagnaði í ár í fyrsta skipti í fjögur ár.


Tengdar fréttir

131 missir vinnuna hjá Airport Associates

53 starfsmenn eru eftir hjá fyrirtækinu og segir forstjórinn að fyrirtækið þurfi áfram að afgreiða flugvélar þótt umferð sé mjög lítil.

Telur að vandræði flugbransans séu rétt að byrja

Guillaume Faury, framkvæmdastjóri evrópska flugvélaframleiðandans Airbus, telur að sú niðursveifla sem flugbransinn um víða veröld stendur nú frammi fyrir vegna útbreiðslu kórónuveirunnar sé enn á frumstigi.

Banna farþegaflug til og frá Argentínu fram í september

Ríkisstjórn Argentínu hefur bannað allt millilanda- og innanlandsflug með farþega vegna kórónuveirufaraldursins til 1. september. Samtök flugfélaga segja að þúsundir manna gætu misst vinnuna fyrir vikið og alþjóðleg flugmálayfirvöld segja aðgerðirnar brot á samningum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×