NBA í nótt: Annað tap Miami í röð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. janúar 2013 09:00 Mynd/AP
Meistararnir í Miami Heat töpuðu sínum öðrum leik í röð er liðið mætti Portland í NBA-deildinni í körfubolta. Portland vann nauman sigur, 92-90, þar sem miklu munaði um þriggja stiga körfu Wesley Matthews þegar um 30 sekúndur voru til leiksloka. Portland komst yfir og hékk á forystunni allt til loka. LeBron James skoraði fimmtán stig í leiknum en hann hafði í síðustu 54 leikjum á undan skorað minnst 20 stig í hverjum leik. Miami var mest með þrettán stiga forystu í leiknum en tapaði að lokum sínum fimmta leik í síðustu átta leikjum sínum. Nicolas Batum var stigahæstur hjá Portland með 28 stig en LaMarcus Aldridge var með 20 stig og fimmtán fráköst. Chris Bosh var stigahæstur hjá Miami með 29 stig. Indiana vann New York, 81-76, og þar með sinn tólfta leik í síðustu fimmtán. Paul George skoraði 24 stig, þar af sjö í 13-0 spretti í fjórða leikhluta. JR Smith skoraði 25 stig fyrir New york en Carmelo Anthony var ekki með þar sem hann tók út leikbann. Dallas vann Sacramento, 117-112, í framlengdum leik. OJ Mayo var með 24 stig og tíu fráköst en Vince Carter átti góða innkomu af bekknum og skoraði 23 stig. Sacramento náði mest sautján stiga forystu í leiknum en Dallas kom til baka og kláraði leikinn í framlengingu.
NBA Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Fleiri fréttir Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sjá meira