Mesti auðlindakjarni hvers samfélags er mannauðurinn Gunnhildur Arnardóttir skrifar 29. júní 2016 11:00 Ósjaldan heyrum við sagt og sjáum ritað „Mannauðurinn er okkar mikilvægasta auðlind“. En hvað eru vinnustaðir að gera til þess að virkja mannauðinn og ná fram því besta hjá hverjum og einum þannig að einstaklingurinn blómstri og skili sem hæstri framlegð? Svarið er að verið er að gera heilmargt en það er hægt að gera svo miklu betur. Á sameiginlegum fundi Samtaka atvinnulífisins og Viðskiptaráðs Íslands í haust kom fram að framleiðni á Íslandi er lág og þarf að aukast. Rannsóknir staðfesta að ákveðnir þættir þurfa að vera til staðar til þess að einstaklingurinn njóti sín í starfi. Þetta eru þættir eins og vitneskja um viðhorf viðskiptavina til þeirrar þjónustu sem veitt er eða vöru sem er seld. Slík vitneskja fæst með viðskiptavinamælingum. Starfsánægja er annar mikilvægur þáttur, þ.e. að einstaklingurinn hlakki til að mæta í vinnuna, sé að gera það sem hann er bestur í daglega, hafi sjálfstæði til ákvörðunartöku og njóti stuðnings frá sínum stjórnanda. Einnig skiptir miklu máli að gerðar séu kröfur um árangur, að vitað sé nákvæmlega til hvers er ætlast og laun séu sambærileg við það sem gerist í viðkomandi starfsgrein. Einn mikilvægasti þátturinn er að starfsmenn upplifi að borin sé virðing fyrir þeim og að þeir beri virðingu fyrir samstarfsmönnum sínum og fyrirtæki, þeim sé sýndur áhugi sem manneskjum og það ríki traust. Séu þessir þættir mældir reglulega í viðhorfsmælingu starfsmanna, t.d. mánaðarlega, þá er fljótt hægt að sjá hvar er verið að gera vel og hvar þarf að bregðast við. Mælingar stjórna hegðun og því er nauðsynlegt að mæla þessa mikilvægu þætti reglulega. Það er hægt að gera með mælitækinu HR Monitor frá Huxun sem mælir upplifun starfsmanna mánaðarlega. HR Monitor fékk nýlega myndarlegan verkefnastyrk frá Tækniþróunarsjóði til að hanna hugbúnað við mælitækið sem er nú þegar komið í virkni í fjölda fyrirtækja á Íslandi. Að ná auknum árangri með mannauð þjóðarinnar er því samspil margra þátta. Mikilvægast er þó fyrir stjórnendur að skilja að enginn nær árangri einn. Horfa þarf á styrkleika hvers og eins, magna þá og leyfa einstaklingnum að njóta sín. Þannig næst mestur árangur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira