260 Indverjar látið lífið í ár við smíði HM-leikvanga í Katar Stefán Ó. Jónsson skrifar 30. nóvember 2015 23:36 Aðstæður verkamanna í Katar eru bágbornar. vísir/afp
Indverska sendiráðið í Katar hefur fengið 3781 kvörtun frá indverskum verkamönnum í landinu, samanborið við 3943 allt árið í fyrra. Þá hafa um 260 Indverjar sem fluttir hafa verið til Katar vegna fyrrnefndrar uppbyggingar látist á árinu – þar af 20 í nóvember. 279 indverskir verkamenn létust í landinu í fyrra. Þetta kemur fram í frétt katarska miðilsins The Peninsula um málið. Mörg þúsund Indverjar starfa í landinu, ekki síst í tengslum við uppbyggingu á íþróttaleikvöngum og nærumhverfi þeirra fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Það fer fram í landinu árið 2022 og hefur verið umdeilt fyrir margra hluta sakir, svo sem vegna meintra mútuþægni og vinnuaðstæðna verkamanna sem hafa unnið að smíði leikvanganna síðustu misseri. Áætlað hefur verið að um 4000 verkamenn muni láta lífið í aðdraganda mótsins. Sumir hafa sagt þá tölu varlega áætlaða enda hafi nú þegar á annað þúsund manns látist við smíði leikvanganna – nú þegar 7 ár eru þangað til flautað verður til leik. Indverska sendiráðið hefur þá einnig gefið það út að um 105 Indverjar sitji í katörskum fangelsum og aðrir 195 bíði þess að verða vísað úr landi. Að sögn indverskra yfirvalda vinnur sendiráðið nú hörðum höndum við að vinna bót á aðstæðum verkamannanna í landinu en samkvæmt CIA World Factbook eru Indverjar um 18 prósent íbúa Katar.
Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Innlent Fleiri fréttir Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Sjá meira