Höldum áfram að hugsa um heilsuna: heilsuátak Nocco Nocco 2. apríl 2020 15:10 Hvetjandi æfingamyndbönd frá Nocco birtast í Bítinu á Stöð 2 og hér á Vísi þessa dagana. „
Ef það hefur einhvern tímann skipt máli að passa upp á heilsuna og halda heilbrigðum lífsstíl þá er það núna. Ekki bara fyrir okkur sjálf heldur fyrir heilbrigðiskerfið allt,“ segir Arnar Freyr, markaðsstjóri Nocco á Íslandi en Nocco stendur nú fyrir heilsuátakinu Höldum áfram hér á Vísi, á Stöð 2 og á samfélagsmiðlum. Átakið snýst um að hvetja fólk til að sinna heilsunni í þeim aðstæðum sem samfélagið stendur nú frammi fyrir. Það getur verið áskorun að þegar rútínan breytist og margir fastir heima við. „Það er ótrúlega auðvelt að detta í þægindagírinn þegar fólk er að vinna heima og erfitt að koma sér af stað þegar líkamsræktarstöðvar eru lokaðar. Margir eru heima í sóttkví og fólk er í annarri rútínu og öðru umhverfi en venjulega. Það er líka hættara við að mataræðið fari úr skorðum og stutt í snakkskúffuna þegar fólk er í kósýgallanum allan daginn. Ég fann það sjálfur þegar ég þurfti að vera í sóttkví í tvær vikur, það var ekkert auðvelt að koma sér í gang,“ segir Arnar. Afar mikilvægt sé að halda áfram að gera þá hluti sem fólk er vant að gera. Klippa: #höldumáfram - Þáttur 1 - Böðvar Tandri „Við viljum að fólk haldi áfram að rækta líkamann og sinni andlegri heilsu og hvetjum fólk til þess að nota mylluverkið #höldumáfram og deila á samfélagsmiðlum því sem það er að gera. Það er hvatning fyrir aðra. Það geta verið æfingar, göngutúrar, hugleiðsla eða hvað sem er, svo lengi sem við höldum áfram að hugsa um okkur sjálf.“ Vinsæll virknidrykkur Nocco er einn vinsælasti drykkur landsins og segir Arnar hann einmitt henta vel í heimaæfinguna. Nocco samstarf „Þetta er frábær íþróttadrykkur, með eða án koffíns. Hann inniheldur fjölmörg vítamín sem er sérstaklega mikilvægt fyrir okkur núna, sem og BCAA aminósýrur sem hjálpa vöðvastarfseminni þegar við erum að æfa.“ Átakið höldum áfram er þegar hafið og birtast á hverjum degi myndbönd í morgunþættinum Bítið á Stöð 2 og í kjölfarið hér á Vísi og á samfélagsmiðlum. Myndböndin eru unnin af Nocco í samstarfi við framúrskarandi íþróttafólk. „Þetta verða alls tíu myndbönd sem sýna ýmiskonar æfingar, allt frá einföldum æfingum fyrir byrjendur og upp í krefjandi æfingaprógrömm. Það ættu allir að finna eitthvað sem hentar. Það þarf lítinn eða engan búnað til að framkvæma æfingarnar og þetta á allt að vera nokkuð einfalt.“ Klippa: #höldumáfram - Þáttur 2 - Bensi og Dóri „Við vinnum myndböndin með þjálfurum og íþróttafólki sem Nocco hefur verið í samstarfi við, þar má meðal annars nefna Bödda, yfirþjálfara í Víkingaþreki Mjölnis, crossfittarana Dóra og Bensa og Kolbrúnu Þöll eina bestu fimleikastelpu landsins, Martin Hermann körfuboltaleikmann og Frederic Aegidius einn fremsti crossfittari heims,“ segir Arnar. Nánar um átakið er að finna hér.
Heilsa Tengdar fréttir #höldumáfram: Æfingar fyrir þá sem deila heimili og vilja æfa saman Tvíburarnir Bensi og Dóri sýna heimaæfingar sem henta vel fyrir þá sem deila heimili og vilja æfa saman. Þær nefnast Tabata Workout og eru hluti af verkefninu #höldumáfram. 2. apríl 2020 12:37 #höldumáfram heimaæfingar: Skepnuhamur með Böðvari Tandra Þjálfarinn Böðvar Tandri ríður á vaðið í verkefninu #höldumáfram og sýnir heimaæfingar sem nefnast Skepnuhamur. 1. apríl 2020 08:00 Mest lesið Æðisleg tilfinning að þurfa ekki að geðjast fólki Tónlist „Tíu ár en enginn hringur“ Makamál Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka Lífið „Þetta var svolítið biblíuleg mynd“ Lífið Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Ósanngjarnt hvernig stúlkan var dregin inn í umræðu sem var að miklu leyti „algjör þvæla“ Lífið Fleiri fréttir Spennan magnast í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum! Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Match Attax Extra viðburður í Fótboltalandi á laugardaginn! Elira flutt á yndislegan stað á Kirkjusandi Bjargvættur fyrir þurrt og þreytt hár Svefninn mun dýpri og betri með tilkomu Neubria Sleep Stórkostleg áhrif á fíngert hár Glódís Rún og Breki frá Austurási sigruðu slaktaumatöltið Þetta eru snyrtivörurnar sem skipta mestu máli Troðfullt á fermingarkvöldi Hagkaups Páskaegg fyrir sanna bragðarefi Askja frumsýnir nýjan og enn glæsilegri Mercedes-Benz EQB Litlu hlutirnir sem geta skipt sköpum Topp tíu listi yfir nauðsynlegar skíðavörur „Femarelle það eina sem hefur virkað fyrir mig“ Flottustu fermingartrendin hjá Galleri 17 í sannkallaðri „fashion“töku Topp tíu listi yfir förðun og húðumhirðu fyrir ferminguna Saltblár er litur ársins hjá KitchenAid Spretthlaup frá grænmetisdeildinni niður í leikfangadeild Spennandi snúningur á ljúffengri klassík Sjá meira
#höldumáfram: Æfingar fyrir þá sem deila heimili og vilja æfa saman Tvíburarnir Bensi og Dóri sýna heimaæfingar sem henta vel fyrir þá sem deila heimili og vilja æfa saman. Þær nefnast Tabata Workout og eru hluti af verkefninu #höldumáfram. 2. apríl 2020 12:37
#höldumáfram heimaæfingar: Skepnuhamur með Böðvari Tandra Þjálfarinn Böðvar Tandri ríður á vaðið í verkefninu #höldumáfram og sýnir heimaæfingar sem nefnast Skepnuhamur. 1. apríl 2020 08:00