Svona fer miðasalan á Justin Bieber fram Stefán Árni Pálsson skrifar 15. desember 2015 13:54 Justin Bieber kemur fram í Kórnum þann 9. september. vísir
Forsala aðdáendaklúbbs Justins Bieber fer fram á Tix.is klukkan fjögur á fimmtudaginn en rafræn biðröð hefst frá því klukkan 15. Tónleikarnir á Íslandi fara fram föstudaginn 9. september í Kórnum, Kópavogi. Alls verða 19.000 miðar í boði sem gerir þessa tónleika að þeim stærstu sem nokkurn tíma hafa verið haldnir hér á landi. Í tilkynningu frá Senu kemur fram að þegar miðar eru keyptir í forsölu aðdáendaklúbbsins bætast 4.949 kr. við hverja miðapöntun, sem er sérstakt aðdáendaklúbbsgjald (membership fee). Hver pöntun getur að hámarki verið 4 miðar. Klúbbagjaldið (membership fee) er aðeins borgað einu sinni fyrir hverja pöntun. Sjá einnig: Justin Bieber: Svona eru verðin og verðsvæðin Allir sem kaupa miða í forsölu aðdáendaklúbbsins verða að kaupa „membership“ til að klára kaupin. Klukkutíma áður en forsala aðdáendaklúbbsins fer fram opnar fyrir rafræna biðröð á Tix.is. Þá verður mögulegt að fara í biðröð á netinu og kl. 16:00 verður byrjað að hleypa inn í kaupferlið. Allir sem eru í biðröðinni fá þá úthlutað tilviljanakenndu númeri, en þeir sem koma inn eftir kl. 16 raðast á eftir öllum þeim sem eru í rafrænu biðröðinni, í þeirri röð sem þeir koma inn. Forsölur sem eru framundan:Föstudaginn 18. desember kl. 10WOW air, Pepsi Max og Sena verða með sérstakar forsölur fyrir sína viðskiptavini föstudaginn 18. desember kl 10. Smelltu hér til að lesa um forsölu Wow air.Smelltu hér til að skrá þig á forsölu Pepsi Max.Smelltu hér til að skrá þig á forsölu Senu.Miðar í öll svæði verða í boði í forsölunum í réttum hlutföllum en takmarkað magn miða verður í boði. Almenn miðasala hefst síðan á Tix 19. desember.
Justin Bieber á Íslandi Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Fleiri fréttir Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Sjá meira