Sannleikurinn: Foreldrar sem hata börnin sín ekki líklegir til að bólusetja þau Andri Þór Sturluson skrifar 9. október 2013 18:22 Hugsanlega upplifa börn bólusetningar sem líkamsárás.
Samkvæmt nýrri skýrslu sóttvarnarlæknis um þátttöku í almennum bólusetningum er margt sem bendir til þess að einhverjir foreldrar séu það vitlausir að þeir bólusetji ekki börnin sín eða bara hata þau það mikið að þeir vilja það ekki. Allt að 25 prósent fjögurra ára barna hafa ekki verið bólusett á sumum landsvæðum og segir Þórólfur Guðnason yfirlæknir á sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins að skýringuna megi að miklu leyti rekja til þess að hvaða hálfviti sem er getur eignast barn og því meiri hálfviti sem þú ert því fleiri börn ertu líklegri til að eignast. Þórólfur segir að Landlæknisembættið muni á næstu dögum hefja átak til að auka bólusetningar barna í samvinnu við sveitarfélög og leikskóla. Er ætlunin að koma fyirir sprautunálum með bóluefni í sandkössum á leiksvæðum barna og í grasi á útivistarsvæðum í þeirri von að börn stingi sig á þeim. Þannig má bólusetja fjölda barna sem annars hefðu ekki verið bólusett og koma í veg fyrir að fáviska sumra foreldra bitni á heilsu barnanna.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en talið er að hún valdi einhverfu.
Harmageddon Mest lesið Ísland í röngu tímabelti Harmageddon Pepsi Max: Kontinuum halda toppsætinu Harmageddon Reykjavíkurdætur frumsýna nýtt myndband á Vísi Harmageddon Segir umhverfisráðherra ekki notast við rök Harmageddon Sannleikurinn: Brynjar Níelsson varpar enn einni sprengjunni Harmageddon 10 ráð til að eiga ánægjulegra kynlíf Harmageddon Er Highway To Hell jólalagið í ár? Harmageddon Aðeins einn frambjóðandi með X 977 húðflúr Harmageddon „Öfgasósíalistar tekið yfir stærstu stéttarfélög landsins“ Harmageddon Átökin verði staðbundin ef til þeirra kemur Harmageddon