Harmageddon

Tuttugu ára afmæli X-977 - Mammút

Ómar Úlfur skrifar
Hljómsveitin Mammút kemur fram á afmælishátíð X-977
Hljómsveitin Mammút kemur fram á afmælishátíð X-977
Hljómsveitin Mammút varð til þegar að tveir vinahópar kynntust á unglingsaldri árið 2003. Hópurinn þekktist ekki áður en ókunn náttúruöfl fengu þau til að stofna saman hljómsveit.

Útkoman var Mammút. Eftir að hafa æft í nokkra mánuði var sveitin hvött til að taka þátt í Músiktilraunum og skráði sveitin sig hikandi til leiks. Svo fór að Mammút sigraði tilraunirnar og fékk aldeilis byr í seglin. Sveitin var dugleg að koma fram næstu tvö árin og náði að skapa sér nafn í íslensku rokksenunni.

Á því herrans ári 2006 kom svo út samnefndur frumburður sveitarinnar. Platan lagðist vel í gagnrýnendur og lagið Þorkell komst í góða útvarpsspilun. Þetta sama ár lék sveitin á Icelandairwaveshátíðinni og mærði David Fricke hjá Rolling Stone sveitina mjög. Næstu tvö árin var sveitin iðin við kolann og lék sömuleiðis á tónleikum utan landssteinanna. Tónlistarhátíðin SXSW var heimsótt og sömuleiðis In The City í Manchester. Mammút hitaði og upp fyrir belgísku rokkarana í dEUS á stuttum evróputúr.

Karkari, önnur plata Mammút kom út árið 2008 og sló í gegn hjá gagnrýnendum sem og aðdáendum. Allar 5 smáskífur plötunnar komust í fyrsta sæti á vinsældarlista X-977. Sveitin spilaði á tveimur stórum evróputúrum og vel völdum tónlistarhátíðum í Skandinavíu. Mammút tók sér góðan tíma í það að fylgja Karkari eftir en ný plata, Komdu til mín svarta systir kemur út í dag og hafa smáskífulögin Salt og Blóðberg nú þegar vakið athygli og greinilegt að framtíðin er björt.

Mammút er ein af þeim sveitum sem að kemur fram á afmælistónleikum X-977 sem fara fram í listasafni Reykjavíkur 29. október næstkomandi. Miðasala er í fullum gangi á miði.is.







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.