Harmageddon

Sannleikurinn: Stofnfundur félags fólks með ofvirkni fór úr böndunum: Stofnuðu 7 önnur félög

Andri Þór Sturluson skrifar
Sprauta þurfti nokkra fundargesti niður eftir átakafund.
Sprauta þurfti nokkra fundargesti niður eftir átakafund.
Stofnfundur hagsmunafélags fólks með ofvirkni og athyglisbrest fór úr böndunum þar sem hann var haldinn í gær.

Réði fólk alls ekki við sig og stofnaði hópurinn 7 önnur félög, gáfu út skáldsögu, héldu innanhúsmót í badminton og föndruðu músastiga, allt á þessum hálftíma stofnfundi.

Félögin sem fólkið stofnaði samhliða hagmunarfélaginu voru: Félag gegn hárlosi, Frelsissamtök Vestmannaeyja, Úkalele spilarar á Íslandi, Gæludýraeigendafélag Grafarvogs, Ungir endurvinnslusinnar, Leynisamtökin Agnar og Stuðningshópur Jóhanns Halldórssonar söngvara sem næsta James Bond.

Öll þessi félög voru stofnuð án vitneskju um þriðjungs fundargesta sem voru uppteknir í teygjutvist og tóku því ekki eftir því sem gerðist í kringum þau.

AAAAAhhhhhhhhhhh aaaaaaa lalalalalalala lalalalalalala!!!!! - Einn fundargesta
Einar Guðfinnsson, eigandi veislusalarins sem fundurinn var haldinn í sagðist aldrei hafa séð annað eins og að þetta fólk „væri bara ekki mennskt“.

Var salurinn nánast ónýtur eftir þennan stutta "fund".









Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt.
 Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu  sem ... .









×