Nítjándi sigur Atlanta í röð | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. febrúar 2015 10:54 Leikmenn Atlanta hafa ástæðu til að fagna þessa dagana. vísir/afp
Ellefu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Atlanta Hawks er óstöðvandi þessa dagana en liðið er taplaust á árinu 2015 og hefur unnið 19 leiki í röð. Í nótt báru Haukarnir sigurorð af Philadelphia 76ers, 91-85. Al Horford skoraði 23 stig og tók 11 fráköst fyrir Atlanta en hann var sérlega mikilvægur á lokakafla leiksins. Paul Millsap og Dennis Schroder komu næstir með 15 stig hvor. Luc Mbah a Moute, Michael Carter-Williams og Jerami Grant skoruðu 13 stig hver fyrir Philadelphia sem er í næstneðsta sæti Austurdeildarinnar. Aðeins New York Knicks er með verri árangur austan megin í vetur. Stephen Curry skoraði 25 stig og gaf sjö stoðsendingar þegar Golden State Warriors vann Phoenix Suns, 106-87. Fyrir leikinn höfðu Curry og félagar tapað tveimur leikjum í röð en góður seinni hálfleikur tryggði þeim sigurinn gegn Phoenix. Klay Thompson skoraði 22 stig fyrir Golden State og Harrison Barnes bætti 13 stigum og átta fráköstum við. Markieff Morris skoraði mest fyrir Phoenix, eða 17 stig. Hann tók einnig 11 fráköst. LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers eru á miklu skriði og unnu sinn tíunda leik í röð þegar þeir sóttu Minnesota Timberwolves heim. Lokatölur 106-90, Cleveland í vil en liðið er í 5. sæti Austurdeildarinnar. James skoraði 36 stig fyrir Cleveland en 16 þeirra komu í fjórða leikhluta. Kevin Love hitti illa gegn sínum gömlu félögum en skilaði 14 stigum og 17 fráköstum. Nýliðinn Andrew Wiggins fór fyrir Úlfunum með 33 stig.Úrslitin í nótt: Sacramento 99-94 Indiana Dallas 108-93 Orlando Toronto 120-116 Washington Philadelphia 85-91 Atlanta Houston 101-114 Detroit Oklahoma 74-85 Memphis Cleveland 106-90 Minnesota Portland 88-95 Milwaukee Charlotte 104-86 Denver Los Angeles Clippers 105-85 San Antonio Phoenix 87-106 Golden StateAndrew Wiggins var frábær gegn Cleveland Tony Parker meinaður aðgangur Blake Griffin átti flottan leik gegn meisturunum
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira