Reyndu að eyða myndbandi af nauðguninni Snærós Sindradóttir skrifar 16. maí 2014 06:30 Kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald hafnað - Mennirnir voru allir leiddir fyrir dómara í gær en þeir hafa dvalið í einangrun á Litla-Hrauni síðan málið kom upp. VÍSIR/Vilelm
Þegar fimmmenningarnir sem grunaðir eru um að hafa nauðgað sextán ára stúlku komust að því að hún ætlaði að kæra þá til lögreglu reyndu þeir að eyða öllum samskiptum sem þeir höfðu átt um atvikið á Facebook. Mennirnir reyndu líka að eyða myndbandsupptöku sem einn þeirra hafði tekið á síma sinn á meðan verknaðurinn átti sér stað. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafði maðurinn sem tók myndbandið upp samband við fórnarlambið eftir atvikið og bað hana afsökunar á því. Við vini sína sagði hann að þeir þyrftu engar áhyggjur að hafa því myndbandinu hefði verið eytt. „Það sem er gott núna er að enginn getur séð myndbandið. Engin sönnun,“ sagði hann. Myndbandið fylgdi kæru stúlkunnar til lögreglu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er það sérstaklega óhugnanlegt og styður frásögn stúlkunnar að fullu. Stúlkan lýsti því í skýrslutökum hjá lögreglu að hún hefði reynt að sporna við verknaðinum en gefist að endingu upp. Vonlaust hefði verið að komast undan mönnunum enda voru þeir fimm talsins. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins stóð nauðgunin yfir í klukkustund. Einn mannanna hóf að koma vilja sínum fram við stúlkuna en svo bættust hinir fjórir mennirnir við einn af öðrum. Eins og áður sagði ræddu fimmmenningarnir saman um verknaðinn á Facebook í kjölfar hans. Þeir ræddu meðal annars að einn hinna kærðu í málinu hefði verið hræddur á meðan atvikið átti sér stað en svo virðist sem mennirnir séu sammála um að honum hafi verið frjálst að hætta þátttöku sinni hvenær sem er. Það gerði hann þó ekki. Mennirnir fimm hafa allir gengist við því að hafa haft samfarir við stúlkuna umrætt kvöld en neita því að um nauðgun hafi verið að ræða. Þeir hafa lýst því að þeir töldu að stúlkan væri verknaðinum samþykk vegna þess að hún sagði ekki neitt og vegna þess að hún hljóp ekki í burtu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins telur lögreglan öll gögn málsins styðja framburð stúlkunnar. Áverkar á líkama hennar sem komu í ljós við læknisskoðun renna jafnframt stoðum undir atburðalýsingu stúlkunnar. Þá þykir framburður stúlkunnar bæði skýr og greinargóður. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að ákæruvaldinu þyki fimmmenningunum ekki bera saman um atvik kvöldsins. Framburður þeirra þyki ótrúverðugur og hann fari á skjön við þau gögn sem liggja fyrir í málinu. Mönnunum var sleppt úr gæsluvarðhaldi í gær. Lögreglan fór fram á að mennirnir sætu áfram í gæsluvarðhaldi vegna almannahagsmuna en héraðsdómur hafnaði þeirri kröfu. Lögreglan hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar og krefst þess að mennirnir sitji í mánuð í gæsluvarðhaldi til viðbótar.
Tengdar fréttir Börn eru höfð í einangrun á Litla-Hrauni Fjórir af fimm sakborningum í hópnauðgunarmálinu eru undir lögaldri. Þeir eru allir í einangrun 14. maí 2014 09:30 Stúlkan lagði sjálf fram myndbandsupptökuna Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir fjórum af fimm piltum sem grunaðir eru um að hafa nauðgað sextán ára stúlku. Myndbandsupptaka er sögð styðja framburð hennar um atvikið. 13. maí 2014 20:41 Fimm piltar handteknir vegna hópnauðgunar Fórnarlambið er sextán ára menntaskólastúlka. Dómari í héraðsdómi hefur tekið sér frest til morguns til að ákveða um gæsluvarðhald. Ungu mennirnir eru í haldi lögreglu og verða vistaðir í fangageymslum í nótt. 8. maí 2014 16:07 Skaðinn margfaldast ef voðaverkið er tekið upp á myndband Það getur margfaldað sálarangist þeirra sem nauðgað er ef voðaverkið er tekið upp á myndband og því síðan dreift, segir sálfræðingur. 10. maí 2014 19:30 Mest lesið Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Innlent Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Innlent Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Erlent Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Innlent Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Innlent Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Erlent Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Fleiri fréttir Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Keyptu ekki skýringar um neyðarvörn í Mjóddinni Bakkaði á ofsahraða með lyfjakokteil í blóðinu Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Styggur svanur í sundi handsamaður og skilað í næstu tjörn Viðreisn stundi hræðsluáróður í stað þess að ræða málin Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Flensan á flugi og Sundlaugarmenningunni fagnað í Vesturbæjarlauginni Játaði en áfrýjaði samt og krafðist sýknu Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Vilja takmarka fjölda barna sem getin eru með sama sæði Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Fjölskyldur fórnarlamba krefjast ábyrgðar Sádi-Arabíu Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Fjögur ár fyrir smygl á rúmum fjórum kílóum af kókaíni 325 milljónir í næsta áfanga LED-ljósavæðingar í Reykjavík Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Líkamsárásir, heimilisofbeldi og vopnaður ökumaður Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Landhelgisgæslan eignast sjálfstýrðan kafbát „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Refsing milduð yfir burðardýri Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Sjá meira
Börn eru höfð í einangrun á Litla-Hrauni Fjórir af fimm sakborningum í hópnauðgunarmálinu eru undir lögaldri. Þeir eru allir í einangrun 14. maí 2014 09:30
Stúlkan lagði sjálf fram myndbandsupptökuna Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir fjórum af fimm piltum sem grunaðir eru um að hafa nauðgað sextán ára stúlku. Myndbandsupptaka er sögð styðja framburð hennar um atvikið. 13. maí 2014 20:41
Fimm piltar handteknir vegna hópnauðgunar Fórnarlambið er sextán ára menntaskólastúlka. Dómari í héraðsdómi hefur tekið sér frest til morguns til að ákveða um gæsluvarðhald. Ungu mennirnir eru í haldi lögreglu og verða vistaðir í fangageymslum í nótt. 8. maí 2014 16:07
Skaðinn margfaldast ef voðaverkið er tekið upp á myndband Það getur margfaldað sálarangist þeirra sem nauðgað er ef voðaverkið er tekið upp á myndband og því síðan dreift, segir sálfræðingur. 10. maí 2014 19:30