Óbreytt verðbólga í Evrulandi 18. júlí 2007 01:30 Verðbólga í þeim þrettán löndum sem nota evruna hélst óbreytt frá fyrri mánuði.
Verðbólga í þeim þrettán löndum sem nota evruna sem gjaldmiðil hélst óbreytt frá fyrri mánuði í júní samkvæmt tölum frá Hagstofu Evrópu. Verðbólgan mælist 1,9 prósent og er því rétt undir markmiði Seðlabanka Evrópu um tveggja prósenta verðbólgu. Þrátt fyrir að verðbólga á evrusvæðinu hafi ekki hækkað milli mánaða telja sérfræðingar líklegt að Seðlabanki Evrópu muni hækka stýrivexti við næsta vaxtaákvörðunardag, úr fjórum prósentum í 4,5 prósent. Líklega muni bankinn leitast við að koma stýrivöxtum á svipað ról og Bretlands og Bandaríkjanna, þar sem þeir eru 5,75 og 5,25 prósent, til að sporna gegn of hröðum verðhækkunum og þenslu launa á evrusvæðinu. Tólf mánaða verðbólga á EES-svæðinu mælist nú 2,1 prósent og hélst hún einnig óbreytt milli mánaða. Verðbólga hér á landi mælist hins vegar þrjú prósent í júní og lækkar um eitt prósentustig milli mánaða. Ástæðan fyrir því að verðbólgan mælist minni samkvæmt mælingum Hagstofu Evrópu en Hagstofu Íslands er að í evrópsku mælingunum er ekki tekið tillit til húsnæðisverðs.
Mest lesið „Áfengið þarf að vera erlendis þegar þú pantar það“ Viðskipti innlent Ráðin markaðsstjóri Prís Viðskipti innlent Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Viðskipti erlent Helga nýr fjármálastjóri Ísorku Viðskipti innlent Stefna á gervigreindarver við Húsavík Viðskipti innlent Arnar og Eiríkur til Fossa Viðskipti innlent Að púsla saman vinnu, aukavinnu og lífinu Atvinnulíf Þrettán nýir veitingastaðir opna í Smáralind Viðskipti innlent Fiskar komnir í fyrstu 25 metra eldistankana Viðskipti innlent Hætt hjá Íslenskri erfðagreiningu eftir sjö ára starf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Risinn sem var of stór til að falla er fallinn Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira