SA fullyrða að verð muni lækka Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 15. september 2014 13:33
Samtök atvinnulífsins fullyrða að skattalækkanir sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpi ársins 2015 muni skila sér út í verðlag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. Þar segir að í umræðu um þessar breytingar hafi margir fullyrt að ekki sé hægt að treysta fyrirtækjum til að skila lækkununum út í verðlag, þar á meðal forseti ASÍ, formaður VR, hagfræðingur ASÍ, greiningardeild Arion banka og ýmsir Alþingismenn. Þessar stðhæfingar séu tilhæfulausar og gangi þvert á reynslu sem fengist hafi af breytingum óbeinna skatta á undanförnum árum. Þannig hafi neðra þrep virðisaukaskatts verið lækkað úr 14 prósentum í sjö árið 2007 og hafi þær breytingar skilað sér út í verðlag. Bæði Samkeppniseftirlitið og ASÍ hafi staðfest þessar lækkanir. Í tilkynningunni segir að lokum orðrétt: „Ummæli núverandi hagfræðings og forseta ASÍ ganga í berhögg við fyrri niðurstöður og greiningar samtakanna á áhrifum af lækkun óbeinna skatta á verðlag. Af ofangreindu að dæma hafa skattalækkanir áður skilað sér að fullu út í verðlag og engin ástæða til að ætla annað en að sú verði einnig raunin nú.“ Tilkynninguna í heild sinni má lesa hér að neðan:„Í umræðu um boðaðar breytingar ríkisstjórnarinnar á virðisaukaskatti og niðurfellingu vörugjalda hafa margir fullyrt að ekki sé hægt að treysta fyrirtækjum til að skila skattalækkunum út í verðlagið. Meðal þeirra má nefna forseta ASÍ, formann VR, hagfræðing ASÍ, greiningardeild Arion Banka og ýmsa alþingismenn. Ekki er vísað til neinna rannsókna eða gagna fullyrðingunum til stuðnings.Staðhæfingarnar eru tilhæfulausar og ganga þvert á reynslu sem fengist hefur af breytingum óbeinna skatta á undanförnum árum. Þann 1. mars 2007 var neðra þrep virðisaukaskatts lækkað úr 14% í 7%, drykkjarvörur voru færðar úr efra þrepi í það neðra og vörugjöld á matvæli afnumin. Að öðru óbreyttu hefði lækkun virðisaukaskatts á þessar vörur átt að lækka matvælaverð um 6,1% og drykkjarvöruverð um 14,1%. Samkvæmt mælingum Hagstofunnar lækkaði matarverð um 8,2% milli febrúar og apríl 2007 og drykkjarvöruverð um 17,1%. Lækkunin var meiri en lækkun VSK gaf tilefni til og gætir þar að hluta afnáms vörugjaldanna á matvæli. Kaupmenn skiluðu þannig skattalækkunum til neytenda.Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins í skýrslu sinni um verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði sem kom út í ársbyrjun 2012 var á sama veg en þar segir:„Verðhækkun dagvara var lítil á árunum 2006 og 2007. Lækkun á virðisaukaskatti á matvælum úr 14% í 7% sem og lækkun á vörugjöldum, einkum gosdrykkjum, í mars 2007 skilaði sér í samsvarandi lækkun á verði matvöru ísmásölu.“Þetta var einnig staðfest af ASÍ eins og lesa má í frétt á vef samtakanna 3. apríl 2007 undir fyrirsögninni: „Lágvöruverslanir skila lækkuninni.“ Í fréttinni segir:„Verðlækkanir í lágvöruverðsverslunarkeðjum í tengslum við lækkanir á virðisaukaskatti og vörugjöldum þann 1. mars sl. voru í samræmi við útreikninga Hagstofunnar á tilætluðum áhrifum aðgerðanna. Þetta kemur fram í fyrstu niðurstöðum úr viðamiklum verðmælingum verðlagseftirlits ASÍ í matvöruverslunum á tímabilinu.Síðar segir: „Þegar skoðaðar eru verðbreytingar á tímabilinu frá febrúar til mars 2007, þegar opinberar álögur á matvörur voru lækkaðar, kemur í ljós að verðlag lágvöruverðsverslananna lækkaði á bilinu 6,4 - 11%.“Í þessu samhengi má rifja upp að aðstöðugjald, sem var 1,3% veltuskattur á atvinnulífið, þ.m.t. verslun, var afnumið árið 1993. Þá, eins og nú, voru uppi efasemdir um að skattalækkunin kæmi neytendum til góða. Ágæta greiningu um áhrif þeirrar skattalækkunar er að finna í tímaritinu Vísbendingu, 26. mars 1993, í grein eftir þáverandi hagfræðing og núverandi forseta ASÍ undir fyrirsögninni: „Hefur aðstöðugjaldið skilað sér?“ Þar segir hann:„Ef miðað er við reynslu undanfarinna ára af verðlagsáhrifum vegna gengisfellinga og nánari sundurliðun á framfærsluvísitölunni eftir eðli og uppruna er ljóst að verðhækkanir undanfarna mánuði hafa verið mun minni en gengisfellingin gaf ástæðu til. Þannig hafa atvinnurekendur greinilega haldið aftur af sér með verðhækkanir og nýtt sér það svigrúm sem m.a. afnám aðstöðugjaldsins gaf.“Ummæli núverandi hagfræðings og forseta ASÍ ganga í berhögg við fyrri niðurstöður og greiningar samtakanna á áhrifum af lækkun óbeinna skatta á verðlag. Af ofangreindu að dæma hafa skattalækkanir áður skilað sér að fullu út í verðlag og engin ástæða til að ætla annað en að sú verði einnig raunin nú.“
Mest lesið Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu Viðskipti innlent Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Viðskipti innlent Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Minnir á flotta tannlæknastofu Samstarf Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Viðskipti innlent „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Viðskipti innlent Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Sjá meira