Viðskipti innlent

Frysti­kistur og vef­mynda­vélar rjúka út á tímum kórónu­veiru

Eiður Þór Árnason skrifar
Óttar Örn Sigurbergsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Elko, hefur fundið fyrir því að margir séu búnir að yfirgefa skrifstofurnar.
Óttar Örn Sigurbergsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Elko, hefur fundið fyrir því að margir séu búnir að yfirgefa skrifstofurnar. Getty/Thomas Barwick - Aðsend

Gríðarmikil aukning hefur verið í sölu á vefmyndavélum og öðrum fjarfundarbúnaði síðustu vikur og er svo komið að slíkar myndavélar eru hér um bil uppseldar. Söluaukningin helst í hendur við mikla fjölgun fólks í sóttkví og aukna áherslu á fjarvinnu. Á sama tíma hefur sala á frystitækjum sums staðar margfaldast. 

Kórónuveirufaraldurinn hefur leitt til þess að meira en þriðjungur landsmanna vinnur nú heima hjá sér að einhverju eða öllu leyti ef marka má nýja könnun MMR. Fastlega má reikna með því að sú tala eigi eftir að hækka enn frekar nú þegar stjórnvöld herða aðgerðir sínar til að hemja útbreiðslu veirunnar.

Sala hefur aukist mikið á ýmsum tölvubúnaði í ljósi þessa og á það einkum við um vefmyndavélar og heyrnartól með hljóðnema sem er yfirleitt staðalbúnaður þegar fjarfundur er annars vegar.

Skortur í Evrópu

Aukin áhersla á fjarvinnu að heiman á tímum kórónuveiru er langt frá því að einskorðast við Ísland. Skortur er á fyrrnefndum búnaði víða í álfunni og eru dæmi um að netþjónustur sem eru nú notaðar í auknum mæli til samskipta og fjarfunda bogni hreinlega undan álaginu.

Svo er komið að verulega er farið að ganga á birgðir tölvu- og raftækjaverslana hér á landi og erfitt hefur reynst að fullnægja þörf.

„Við erum að upplifa mikinn skort í Evrópu á vefmyndavélum og headsettum [heyrnartólum með hljóðnema] og reynist mjög erfitt að fá birgðir,“ segir Óttar Örn Sigurbergsson, aðstoðarframkvæmdastjóri raftækjaverslana Elko, í samtali við Vísi.

Þessi búnaður er nú víða af skornum skammti. Getty/Erlon Silva

Að hans sögn byrjaði að bera á söluaukningunni snemma í mars og skiptist salan nokkuð jafnt á milli einstaklinga og minni fyrirtækja.

Í tölvubúnaðinum er aukningin mest í sölu á heyrnartólum og „er það mælt í þriggja stafa prósentutölu.“ Allar vefmyndavélar eru nú uppseldar hjá fyrirtækinu og er beðið eftir nýjum sendingum.

Margir að skipta upp vinnurýmum

Svipaða sögu má segja hjá Tölvulistanum, sem rekur sjö verslanir víða um land. Þar hefur sala á ýmis konar tölvu- og fjarfundarbúnaði aukist mikið undanfarnar vikur og eru þar sömuleiðis allar vefmyndavélar uppseldar.

Hið sama virðist eiga við um marga aðra söluaðila hér á landi ef marka má netverslanir þeirra.

Að sögn Óskars Þórs Óskarssonar, forstöðumanns fyrirtækjasviðs hjá Tölvulistanum, hefur verið erfitt að fá þessar vörur hjá birgjum í Evrópu og reyndist nýjasta sendingin af myndavélum vera minni en reiknað var með vegna vöruskorts.

Netverslun og heimsending á ýmsum vörum hefur aukist hjá fjölda fyrirtækja síðustu vikur. Stöð 2

Einnig hefur sala aukist mikið á netkortum sem gera annars snúrutengdum borðtölvum kleift að tengjast netinu þráðlaust. Óskar segir að fjölmörg fyrirtæki og stofnanir þurfi á slíkum kortum að halda nú þegar vinnurýmum er skipt upp og fólk fært fjær hvort öðru.

Bæði Óskar og Óttar hjá Elko hafa séð aukningu í netverslun og heimsendingu síðustu vikur umfram söluaukningu.

„Viðskiptavinir velja vefverslun mun meira þessa dagana,“ segir Óttar.

Segir fólk hafa það náðugt

Óttar bendir þó á ef litið sé til allra vöruflokka í verslunum Elko séu það raunar frystiskápar og -kistur sem hafi rokið mest upp í sölu undanfarnar vikur eða sem nemur 570%. Svo virðist vera sem landinn ætli nú að birgja sig upp og eiga endingargóð matvæli í frystinum.

Svipuð þróun hefur sést í frystitækjasölu hjá systurkeðjunni Elkjop sem rekur hátt í fjögur hundruð raftækjaverslanir á Norðurlöndunum, að sögn Óttars.

Þá hefur Elko einnig séð verulega aukningu í sölu á afþreyingartækjum á borð við leikjatölvur og minni eldhústækjum svo sem hrærivélum og vöfflujárnum.

„Það er því verið að hafa það náðugt heima fyrir á mörgum stöðum,“ segir Óttar Örn Sigurbergsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Elko.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×