Viðskipti erlent

Vilja beinar greiðslur til Bandaríkjamanna vegna faraldursins

Kjartan Kjartansson skrifar
Steve Mnuchin, fjármálaráðherra, við ræðupúlt í Hvíta húsinu með Donald Trump forseta í dag. Þeir vilja að Bandaríkjaþing samþykki risavaxna efnahagslega innspýtingu á allra næstu dögum.
Steve Mnuchin, fjármálaráðherra, við ræðupúlt í Hvíta húsinu með Donald Trump forseta í dag. Þeir vilja að Bandaríkjaþing samþykki risavaxna efnahagslega innspýtingu á allra næstu dögum. AP/Evan Vucci

Bandaríkjastjórn gæti veitt landsmönnum sem verða fyrir efnahagslegum skakkaföllum vegna kórónuveirufaraldursins beinar peningagreiðslur samkvæmt hugmyndum að risavöxnum aðgerðapakka sem á að blása lífi í hagkerfið. Hvíta húsið og Bandaríkjaþing ræða nú um efnahagsinnspýtingu sem gæti orðið stærri en sú sem var samþykkt eftir fjármálahrunið árið 2008.

Steve Mnuchin, fjármálaráðherra, segist fylgjandi hugmyndunum um beingreiðslur til almennings til að hjálpa honum að standa af sér efnahagslegar þrengingar sem eru fyrirséðar vegna faraldursins. Fyrirtæki hafa víða gripið til uppsagna vegna minnkandi eftirspurnar.

„Við erum að skoða að senda Bandaríkjamönnum ávísanir strax. Og ég meina strax, á næstu tveimur vikum,“ sagði Mnuchin við fréttamenn í dag.

Alls gæti neyðarpakkinn hljóðað upp á allt að milljón milljónir dollara, að sögn Washington Post. Það væri þá stærsti neyðarpakki stjórnvalda frá því í kreppunni miklu á fyrri hluta 20. aldar, að sögn AP-fréttastofunnar. Í honum felst meðal annars neyðaraðstoð við flugfélög og hótel sem hafa orðið sérstaklega illa úti vegna ferðatakmarkana sem komið hefur verið á víða um heim.

Mitch McConnell, leiðtogi meirihluta repúblikana í öldungadeildinni, lofar því að þingmenn muni sitja við þar til þeir hafi samþykkt frekari efnahagslegar aðgerðir ofan á þær sem fulltrúadeildin samþykkti um helgina og eru smærri í sniðum. Það frumvarp felur meðal annars í sér veikindaleyfi fyrir launafólk, frekari rétt fólks til atvinnuleysisbóta auk fjármuna til að styðja börn og eldri borgara sem glíma við erfiðleika vegna faraldursins.

Markaðir tóku við sér í dag eftir hafa verið í nær frjálsu falli undanfarna daga og er það rakið til væntinga til aðgerðapakka stjórnvalda. DOW-vísitalan hækkaði um þúsund stig í dag eftir verðfall í gær sem var það versta frá markaðshruni árið 1987, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Alls hafa hátt í sex þúsund manns greinst með kórónuveiruna í Bandaríkjunum og um hundrað manns látið lífið. Fáir hafa þó verið skimaðir fyrir veirunni fram að þessu.


Tengdar fréttir

Nýr tónn í Trump

Frá því nýja kórónuveiran fór að dreifast utan landamæra Kína hefur Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, gert lítið úr veirunni og talað gegn ráðleggingum sérfræðinga. Það breyttist í gær.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×