Juventus stein­lá á heima­velli

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Juventus áttu ekki góðan leik í kvöld.
Leikmenn Juventus áttu ekki góðan leik í kvöld. Giorgio Perottino/Getty Images

Ítalíumeistarar Juventus töpuðu 0-3 gegn Fiorentina á heimavelli sínum í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Dusan Vlahovic kom gestunum yfir strax á þriðju mínútu og ekki skánaði það þegar Juan Cuadrado fékk rautt spjald í liði Juventus á 18. mínútu leiksins. Juventus þurfti því að leika 72 mínútur manni færri í kvöld.

Var þetta fimmta rauða spjald liðsins á tímabilinu og ljóst að eitthvað er að pirra leikmenn Ítalíumeistaranna.

Staðan var enn 0-1 í hálfleik en á 76. mínútu varð Alex Sandro fyrir því óláni að skora sjálfsmark og fimm mínútum síðar gulltryggði Martin Caceres 3-0 sigur gestanna.

Tapið þýðir að Juve eru enn sjö stigum á eftir toppliði AC Milan þegar bæði lið hafa leikið 13 leiki. Milan með 31 en Juventus með 24.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira