Albumm

Plötubúðir og Tónlistarborgin Reykjavík bjóða upp á tónleika og spjall

Ritstjórn Albumm skrifar
Ingibjörg Elsa Turchi kemur fram í Lucky Records 22. desember.
Ingibjörg Elsa Turchi kemur fram í Lucky Records 22. desember.

Plötubúðir í Reykjavík og Tónlistarborgin Reykjavík bjóða upp á tónleika í streymi auk spjalls tónlistarsérfræðinga um íslenskar útgáfur ársins fjögur kvöld fram að jólum. Streymt verður beint frá tónleikunum á FB-síðu Tónlistarborgarinnar sem og FB-síðu hverrar plötuverslunar fyrir sig.

Verkefnið er framhald verkefnis sem hófst í sumar og átti að fara fram í þrjú skipti í plötuverslunum Reykjavíkur. Vegna COVID-19 var einungis hægt að halda viðburðinn í eitt skipti sem þó gafst einstaklega vel. 

Nú er viðburðurinn færður yfir á netið. Hugmyndin að baki verkefnisins er að styðja við bakið á plötuverslunum á einkar erfiðum tímum og fagna mikilvægu hlutverki þeirra í tónlistarborginni. Á þessum tímum og rétt fyrir jólin er fólki bent á að kaupa íslenska tónlist í jólapakkann og er það gert til að styðja við bæði plötuverslanirnar og okkar frábæra tónlistarfólk.

Verkefnið fór af stað í gær.

Dagskráin

Dagskráin er alls ekki af verri endanum en hana má sjá hér að neðan: 


  • 12 Tónar – 17. des kl 21:00
  • Gróa
  • Skoffín
  • Elísabet Indra og Andrea Jóns spjalla um íslenskar útgáfur ársins.


Verkefnið, sem er samstarf Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur og plötuverslana í Reykjavík, er stutt af Jólaborginni, FHF, FÍH og STEF.


Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.








×