Viðskipti innlent

Segir Kringluna öruggan stað til að heimsækja

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigurjón Örn Þórsson framkvæmdastjóri Kringlunnar segir engin smit hafa komið upp í verslunum eða veitingastöðum Kringlunnar. 
Sigurjón Örn Þórsson framkvæmdastjóri Kringlunnar segir engin smit hafa komið upp í verslunum eða veitingastöðum Kringlunnar.  Vísir/Vilhelm

Framkvæmdastjóri Kringlunnar segir Kringluna öruggan stað til að heimsækja en minnir á mikilvægi sóttvarna. Engin smit hafi komið upp nýlega í verslunum eða veitingastöðum Kringlunnar.

Forsvarsmönnum Kringlunnar er ekki kunnugt um að nýleg smit hafi komið upp á meðal starfsfólks verslana eða veitingastaða Kringlunnar. Þetta segir Sigurjón Örn Þórsson framkvæmdastjóri Kringlunnar í tilkynningu.

Smitin sem Rögnvaldur tjáði Vísi að hefðu komið upp í Kringlunni voru á meðal starfsmanna á skrifstofu.Vísir/Baldur Hrafnkell

Vísir hafði eftir Rögnvaldi Ólafssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni fyrr í dag að einhverjir starfsmenn í Kringlunni hefðu veikst. Ekki væri vitað hvernig þau tilvik væru komin upp.

„Forsvarsmönnum Kringlunnar er ekki kunnugt um að nýleg smit hafi komið upp á meðal starfsfólks verslana eða veitingastaða Kringlunnar og hefur almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra staðfest það,“ segir Sigurjón Örn í fréttatilkynningu.

Jóhann K. Jóhannsson, upplýsingafulltrúi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, tjáði Vísi nú síðdegis að kórónuveirusmit sem rakið væri til Kringlunnar hefði komið upp hjá tveimur starfsmönnum á skrifstofu í Kinglunni. Smitrakning stæði enn yfir en ekkert sem bendi til þess að smit tengdist verslun í Kringlunni.

Grímuskylda er í Kringlunni, bæði á göngugötum og í verslunum.Vísir/Vilhelm

Sigurjón segir í tilkynningu að sóttvarnir séu í hæsta forgangi í Kringlunni og reglum um sóttvarnir hafi verið fylgt í hvívetna. Nefnir hann grímuskyldu í göngugötu og verslunum, sprit við alla innganga verslana og víðar auk þess sem þrif hafi verið stóraukin frá því að faraldurinn hófst og allir helstu snertifletir eru sótthreinsaðir reglulega.

„Með róttækum aðgerðum sem gripið hefur verið til í sóttvörnum telur Kringlan sig vera öruggan stað að heimsækja en hvetur jafnframt alla viðskiptavini til að virða reglur um sóttvarnir s.s. fjarlægðarmörk, grímuskyldu auk þess að sinna persónulegum sóttvörnum. Mestu skiptir að við stöndum saman - í 2 metra fjarlægð,“ segir í tilkynningunni.

Rögnvaldur mælti með því á upplýsingafundi almannavarna í dag að fólk nýtti netið til verslunar. Sigurjón bendir á að vöruúrval margra verslana megi nálgast á vef Kringlunnar, tilboðin séu þau sömu og flestar verslanir bjóði upp á heimsendingu.

Engin smit hjá starfsfólki Kringlunnar

Forsvarsmönnum Kringlunnar er ekki kunnugt um að nýleg smit hafi komið upp á meðal starfsfólks verslana eða veitingastaða Kringlunnar og hefur almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra staðfest það.

Rétt er að fram komi að sóttvarnir eru í hæsta forgangi í verslunarmiðstöðinni og reglum um sóttvarnir hefur verið fylgt í hvívetna.

·Grímuskylda er í göngugötu sem og í öllum verslunum.

·Boðið er upp á spritt við innganga, hjá öllum verslunum og víðar um húsið.

·Þá hafa þrif verið stóraukin frá því að faraldurinn hófst og allir helstu snertifletir eru sótthreinsaðir reglulega.

Kringlan er öruggur staður til að versla á – heimsendingar eru þó einnig í boðiNú fer í hönd tími jólainnkaupa og leggur Kringlan mikla áherslu á góðan undirbúning viðskiptavina til að auðvelt verði að sinna innkaupum og hlýta um leið öllum gildandi takmörkunum. Á kringlan.is er hægt að kynna sér vöruúrval verslana og jafnvel klára kaup. Verslanir bjóða flestar upp á heimsendingu en auk þess er hægt að fá vörur afhentar í póstbox Kringlunnar sem eru opin til kl.23 öll kvöld. Þannig geta viðskiptavinir nýtt sér öll þau sömu tilboð sem eru í boði í verslunum með því að versla á netinu og fá vörurnar heimsendar.

Með róttækum aðgerðum sem gripið hefur verið til í sóttvörnum telur Kringlan sig vera öruggan stað að heimsækja en hvetur jafnframt alla viðskiptavini til að virða reglur um sóttvarnir s.s. fjarlægðarmörk, grímuskyldu auk þess að sinna persónulegum sóttvörnum.

Mestu skiptir að við stöndum saman - í 2 metra fjarlægð.


Tengdar fréttir

Starfsfólk í Kringlunni veiktist

Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir smit sem komið hafa upp hjá starfsfólki í Kringlunni meðal þeirra sem séu í skoðun.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×