Makamál

Fjölástir á Íslandi algengari en fólk heldur

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Þó svo að sambandformið fjölástir (polyamory) virðist vera æ algengara á Íslandi á síðustu árum eru enn ekki til samtök sem halda utan um samfélag fjölkærra.
Þó svo að sambandformið fjölástir (polyamory) virðist vera æ algengara á Íslandi á síðustu árum eru enn ekki til samtök sem halda utan um samfélag fjölkærra. Getty

„Ég elska alla“ söng Shady Owens söngkona Hljóma svo eftirminnilega á sjöunda áratugnum. Í hefðbundnum sambandsformum og því sambandformi sem við þekkjum best í vestrænum heimi, þá eru tveir aðilar í ástarsambandi, tveir í hjónabandi.

Skilgreiningin á fjölástum er hins vegar sú að þú getur verið í ástarsambandi með fleiri en einum aðila í einu. Grundvallaratriðið er opin og upplýst samskipti allra aðila. Fjölástarsambönd geta verið ýmiskonar. Ein manneskja getur átt kærasta og kærustur án þess að þeir aðilar séu í sambandi. Einnig geta tveir eða fleiri verið í sama sambandinu. Fólk ákveður reglur fyrir samböndin og mikilvægt að það sé í fullu samráði við alla aðila.

Makamál tóku viðtal við íslenska konu fyrir stuttu en sjálf skilgreinir hún sig sem fjölkæra (poly). Hún er gift, á kærasta og nokkra elskhuga en býr ein.

Að vera í fjölástarsambandi (polyamory) kallast að vera fjölkær (poly). Á Íslandi eru engin skilgreind samtök sem halda utan um samfélag fjölkærra einstaklinga svo að ekki er hægt að segja með vissu hversu stór hluti samfélagsins skilgreinir sig sem fjölkæra. Þó ber fólki saman um að þetta samfélag fari vaxandi hér á landi og að æ fleiri einstaklingar reyni fyrir sér í fjölkærum samböndum.

Einn helsti misskilningurinn varðandi fjölástarsambönd er að rugla því saman við framhjáhald. Þegar þú ert fjölkær og ert í ástarsambandi þá er allt uppi á borðum og gerir fólk með sér einhvers konar sambandssamning. Brot og svik á þessum samning má þó skilgreina sem framhjáhald.

Makamál gerðu á dögunum könnun þar sem lesendur Vísis voru spurðir um vitneskju sína á sambandsforminu fjölástum.

Um þúsund manns tóku þátt í könnuninni og ef marka má niðurstöðurnar mætti segja að stór hluti lesenda hafi einhverja þekkingu á fjölástum en aðeins 19% sögðust aldrei hafa heyrt um sambandsformið. 

Hefur þú heyrt um sambandsformið fjölástir (polyamory)?

Niðurstöður*

Já, ég er í fjölástarsambandi - 8%

Já, ég veit hvað það er - 51%

Já, en ekki mikið - 22%

Nei, hef aldrei heyrt um fjölástir -19%

*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.

Umsjónamaður Makamála mætti í Brennsluna á FM 957 og ræddi niðurstöðurnar ásamt því að kynna til leiks nýja Spurningu vikunnar. Hægt er að hlusta á líflegar umræður hér fyrir neðan. 


Tengdar fréttir

Mikill áhugi á swing-senunni

Í kjölfar umfjöllunar um makaskipti voru lesendur Vísis spurðir hvort þeir hefðu áhuga á swing-senunni í Spurningu vikunnar. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×