Innlent

Um­ferðar­ó­happ talið vera vegna far­síma­notkunar undir stýri

Sylvía Hall skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölmörgum útköllum í gærkvöldi og nótt.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölmörgum útköllum í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm

Skömmu eftir klukkan þrjú í nótt barst lögreglu tilkynning um umferðaróhapp í Kópavogi þar sem bifreið hafði verið ekið á grindverk. Bifreiðin var óökufær eftir áreksturinn en talið er að ökumaðurinn hafi verið með farsíma sinn í höndunum og því misst stjórn á bifreiðinni. Hann slapp ómeiddur en bifreiðin var flutt af vettvangi með Króki.

Þá var töluvert um vímuefnaakstur í gærkvöldi og í nótt, en klukkan 20 í gærkvöld var bifreið stöðvuð í Árbæ þar sem ökumaðurinn var grunaður um akstur undir áhrifum áfengis- og fíkniefna og vörslu fíkniefna. Hann hafði einnig verið sviptur ökuréttindum.

Á tíunda tímanum í gær voru tveir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Skömmu eftir klukkan ellefu var svo annar ökumaður stöðvaður, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, og reyndist sá hafa verið sviptur ökuréttindum áður.

Rétt fyrir klukkan eitt í nótt var enn einn ökumaður í Hafnarfirði stöðvaður vegna gruns um ölvunarakstur

Ungur ökumaður neitaði sök 

Þá hafði lögregla afskipti af tveimur ungum ökumönnum í nótt, en rétt fyrir klukkan eitt var bifreið stöðvuð í Hafnarfirði þar sem ökumaðurinn reyndist sautján ára. Þrír fimmtán ára farþegar voru með í bílnum og reyndust tveir þeirra undir áhrifum áfengis. Fram kemur í dagbók lögreglu að málið hafi verið afgreitt með aðkomu foreldra og tilkynningu til Barnaverndar.

Skömmu áður hafði bifreið verið stöðvuð á Reykjanesbraut vegna hraðaksturs, en lögreglumenn mældu hraða bifreiðarinnar 115 kílómetra á klukkustund þar sem hámarkshraði var 80. Ökumaðurinn var einnig sautján ára og neitaði sök, en samkvæmt lögreglu verður málið afgreitt með forráðamanni hans viðstöddum.

Sjötíu kílómetrum yfir hámarkshraða grunaður um ölvun 

Lögregla var við hraðaeftirlit í Ártúnsbrekku þegar hún stöðvaði ökumann laust eftir miðnætti. Sá hafði mælst á 148 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði var 80 og er sá grunaður um ölvun við akstur.

Þá var einnig hraðaeftirlit á Vesturlandsvegi þar sem tveir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur, annar á 119 kílómetra hraða en hinn á 114 kílómetra hraða. Hámarkshraði á Vesturlandsvegi er 80.

Á Reykjanesbraut var bifreið stöðvuð eftir hraðamælingu þar sem ökumaðurinn ók á 115 kílómetra hraða. Að því er fram kemur í dagbók lögreglu var ökumaðurinn erlendur ríkisborgari og hafði hann engin skilríki meðferðis, en lögregla fylgdi honum á dvalarstað þar sem hann framvísaði vegabréfi og erlendu ökuskírteini.

Húsleit í Hafnarfirði 

Lögregla fór í húsleit um klukkan 21 í gær og hafði afskipti af tveimur mönnum á heimilum þeirra í Hafnarfirði. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fundust fíkniefni á vettvangi og voru þau haldlögð til eyðingar.

Á fjórða tímanum í nótt hafði lögregla afskipti af manni vegna vörslu fíkniefna og brota á lyfja- og vopnalögum. Það mál var afgreitt á lögreglustöð.

Eitt þjófnaðarmál kom inn á borð lögreglu klukkan eitt í nótt. Þar hafði sautján ára einstaklingur stolið samloku, drykk og sælgæti í verslun í hverfi 108. Tilkynning var send um málið til Barnaverndar og var forráðamaður viðstaddur skýrslutöku.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×