Viðskipti erlent

Þrjár nýjar tölvur og nýir örgjörvar frá Apple

Samúel Karl Ólason skrifar
Þrjár nýjar tölvur voru kynntar til leiks í gær.
Þrjár nýjar tölvur voru kynntar til leiks í gær. Apple

Tæknirisinn Apple opinberaði í gær nýjar tölvur, nýja örgjörva og nýtt stýrikerfi. Kynningin fór alfarið fram á netinu, eins og svo margt annað um þessar mundir.

Nýir örgjörvar fyrirtækisins hafa vakið töluverða athygli en auk þeirra kynnti Apple þrjár tegundir tölva sem eru allar með nýju örgjörvana, og veitti frekari upplýsingar um stýrikerfið macOS 11 Big Sur.

Allar tölvurnar þrjár eiga að sjást í hillum verslana í næstu viku.

Byrjum á örgjörvanum.

Apple segir örgjörvana, sem heita M1, vera þá hröðustu sem fyrirtækið hafi hannað. Þeir muni bæði auka getu og rafhlöðuendingu tölva fyrirtækisins. Þeim verður komið fyrir í öllum vörulínum Apple á næstu árum en fyrirtækið er hætt samstarfi með Intel.

Hingað til hefur Apple notað eigin flögur í farsíma og önnur minni tæki en ekki tölvur.

Í kynningu Apple kom fram að örgjörvarnir væru allt að þrisvar sinnum hraðari en örgjörvar Intel.

Ný Mac Mini

Kynning nýrrar Mac Mini kom á óvart ef marka má erlenda tæknimiðla. Þar er um að ræða tiltölulega lítinn kubb en grunnútgáfa tölvunnar inniheldur 256 GB stóran SSD harðan disk og 8 GB vinnsluminni.

Þann kubb tengir maður svo við skjá eða skjái, lyklaborð og mús og er maður þá klár í slaginn.

Apple segir að Mini-tölvan hafi aldrei verið öflugari en nú og það sé vegna M1 örgjörvanna.

Nýju fartölvurnar tvær eru sagðar hraðari og öflugari en áður.APPLE

Ný MacBook Air

MacBook Air er vinsælasta tölva Apple og ein af heimsins vinsælustu fartölvum. Nú er komin ný útgáfa af þeirri tölvu og eins og með hinar, þá segir Apple að þessi sé öflugri og betri en hinar. Það sé að miklu leyti vegna M1 örgjörvanna.

Rafhlöðuending er einnig sögð hafa verið aukin. Tölvan á að duga í um fimmtán klukkustundir við að vafra á netinu og í um 18 klukkustundir við það að horfa á myndbönd.

MacBook Pro

MacBook Pro fartölvurnar eru einnig verulega vinsælar á heimsvísu. Í nýjustu útgáfu hennar lofar Apple sambærilegum breytingum og í hinum tölvunum. Hraðari, öflugri og lengri rafhlöðuending og allt er það til komið vegna nýju örgjörvanna.

macOS 11 Big Sur

Nýjasta stýrikerfi Apple hefur verið í betaprófunum í nokkra mánuði en það verður gefið út að fullu á morgun. Þá eiga notendur Apple að geta sótt það sér að kostnaðarlausu.

Samkvæmt Apple er stýrikerfið gert með M1 örgjörvana í huga en þeir sem eiga eldri tölvur með örgjörvum frá Intel geta samt sótt stýrikerfið.

Hér að neðan má sjá kynningu Apple en búið er að skipta henni niður í hluta. Þar má sjá kynningu hvers tækis og hugbúnaðar fyrir sig.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×