Erlent

Repúblikanaflokkurinn klofinn vegna ásakana Trump

Kjartan Kjartansson skrifar
Trump hélt fram fjölda ásakana um alls kyns svik gegn sér í ræðu í Hvíta húsinu í gær. Hann virtist þó fremur daufur í dálkinn og ekki eins ákveðinn í orðum sínum og oft áður. Hann tók ekki neinar spurningar eftir að hann lauk máli sínu.
Trump hélt fram fjölda ásakana um alls kyns svik gegn sér í ræðu í Hvíta húsinu í gær. Hann virtist þó fremur daufur í dálkinn og ekki eins ákveðinn í orðum sínum og oft áður. Hann tók ekki neinar spurningar eftir að hann lauk máli sínu. AP/Evan Vucci

Nokkrir leiðtogar Repúblikanaflokksins á Bandaríkjaþingi tóku undir stoðlausar ásakanir Donalds Trump forseta um kosningasvik eftir ræðu sem hann hélt í gærkvöldi. Einn fyrrverandi forsetaframbjóðandi lýsti yfirlýsingum forsetans aftur á móti sem „hættulegum“.

Trump kallaði fréttamenn til fundar í Hvíta húsinu í gærkvöldi en tók ekki við neinum spurningum. Þess í stað hélt hann sautján mínútna langa ræðu með fjölda rangra eða stoðlausra ásakana um stórfelld kosningasvik og bellibrögð í talningu atkvæða. Hélt hann því ítrekað fram að demókratar væru að „stela“ af sér kosningunum.

Nokkrar sjónvarpsstöðvar hættu að fylgjast með ræðunni í beinni til þess að upplýsa áhorfendur sína um sannleiksgildi fullyrðinga forsetans.

Eftir ræðuna stukku nokkrir þingmenn repúblikana sem eru hliðhollir Trump honum til varnar og tóku undir ásakanirnar, að sögn Washington Post. Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður frá Suður-Karólínu, sagði ásakanirnar „sláandi“. 

Kevin McCarthy, leiðtogi repúblikana í fulltrúadeildinni, reyndi að gera það tortryggilegt að Biden virtist ætla að sigra í forsetakosningunum á sama tíma og repúblikanar söxuðu á meirihluta demókrata í fulltrúadeildinni.

„Trump forseti vann þessar kosningar,“ sagði McCarthy ranglega við Fox-fréttastöðina.

Ted Cruz, öldungadeildarþingmaður Texas sem Trump niðurlægði ítrekað í forvali repúblikana árið 2016, gaf í skyn að ríkisþing í lykilríkjum þar sem repúblikanar eru með meirihluta gætu tekið fram fyrir hendurnar á kjörstjórnum og ákveðið að veita kjörmenn ríkjanna til Trump frekar en Biden. Graham útilokaði þann möguleika ekki.

Vilja að Trump leggi fram sannanir

Ekki voru þó allir repúblikanar eins tilbúnir að styðja stoðlausar ásakanir forsetans. Flestir þeirra reyndu að hafna fullyrðingum forsetans ekki alfarið heldur að leggja áherslu á mikilvægi þess að lagðar væru fram sannanir fyrir þeim.

Þannig sagði Chris Christie, fyrrverandi ríkisstjóri New Jersey sem hefur unnið með Trump-framboðinu, að kosningasvik eins og þau sem Trump lýsti ættu sér stað. Hann hafi hins vegar ekki séð neinar sannanir frá forsetanum.

„Sem saksóknari er þetta eins og að segja mér að ákæra einhvern án þess að sýna mér neinar sannanir,“ sagði Christie sem hefur verið einn álitsgjafa ABC-sjónvarpsstöðvarinnar í kosningaumfjöllun hennar.

„Eina sem þetta gerir er að æsa fólk upp án þess að upplýsa það,“ sagði Christie sem var eitt sinn saksóknari.

Á CNN sagði Rick Santorum, sem bauð sig fram í forvali repúblikana árið 2012, að margir teldu að svik væru í tafli og að kosningunum væri stolið en það væri þó ekki vitað. 

„Að forsetinn haldi því fram án sannana er hættulegt,“ sagði Santorum. Enginn kjörinn fulltrúi ætti að segja þá hluti sem Trump sagði í ræðu sinni.

Marsha Blackburn, öldungadeildarþingmaður repúblikana frá Tennessee, sagðist einnig vilja sjá forsetann leggja fram sannanir fyrir fullyrðingum sínum.

„Ef það er misræmi, skráum það,“ sagði hún um svikabrigsl forsetans.

Marco Rubio, annar repúblikani sem Trump lagði að velli í forvalinu 2016, hefur hafnað því að það séu kosningasvik að telja öll atkvæði. Hann reyndi að vera diplómatískur á Twitter í gær þegar hann sagði að Trump og framboð hans ættu fullan rétt á að leita réttar síns fyrir dómstólum teldi það á sig hallað.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×