Matur

Eva Laufey bakar með dætrunum í beinni á Instagram

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Í fyrstu bylgju faraldursins bökuðu mæðgur og klæddu sig svo upp í kjóla fyrir kökuboðið. Á þessari mynd má sjá Evu Laufey í brúðarkjólnum sínum.
Í fyrstu bylgju faraldursins bökuðu mæðgur og klæddu sig svo upp í kjóla fyrir kökuboðið. Á þessari mynd má sjá Evu Laufey í brúðarkjólnum sínum. Eva Laufey

Í fyrstu bylgju faraldursins byrjaði fjölmiðlakonan og matgæðingurinn Eva Laufey Kjaran með bakstursklúbb á samfélagsmiðlum. Hún hefur ákveðið að setja hann aftur af stað um helgina og mun baka í beinni á Instagram, auðvitað með dæturnar sér við hlið. Hún hvetur fólk til að baka með og þá sérstaklega börn. 

„Við fórum í gegnum fyrstu bylgjuna af faraldrinum með því að baka nógu mikið og klæða okkur í kjóla. Við ætlum að halda því áfram og koma okkur í gegnum þessa bylgju,“ 

segir Eva Laufey. Mæðgurnar ætla að baka sunnudaginn 11. október klukkan 11:00. Eva Laufey ætlar líkt og áður að láta það koma á óvart hvað eigi að baka, en hér fyrir neðan má sjá hráefnin og áhöldin sem þarf að eiga ef fólk ætlar að baka með þeim. 

„Allir eru velkomnir, hráefnin og baksturinn verður ekki flókin og því ættu langflestir að geta verið með, ungir sem aldnir,“ segir Eva Laufey í samtali við Vísi. 

Instagram síðu Evu Laufeyjar má finna HÉR.

Hráefni:

  • 5 dl hveiti 
  • 2 egg
  • 3 dl hrein AB mjólk 
  • 2 - 3 dl mjólk
  • 1 tsk vanilludropar 
  • 3 tsk lyftiduft
  • salt á hnífsoddi 
  • 3 msk brætt smjör
  • 1 msk sykur

Meðlæti

 frjálst val en til dæmis:

  • Nutella  
  • Jarðarber
  • Síróp 
  • Bláber
  • Bananar 
  • Súkkulaðibitar
  • Hnetusmjör

Áhöld:

  • ·Skál 
  • ·Pískari
  • ·dl mál 
  • Panna
  • Spaði

Tengdar fréttir

Einfaldar en ómótstæðilegar súkkulaðibitakökur

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir sýnir reglulega frá bakstri og eldamennsku á Instagram og er þar með yfir 28 þúsund fylgjendur. Um helgina ákvað hún að fá fólk með sér í bakstur og birti uppskriftina deginum áður án þess að taka fram hvað hún ætlaði að baka

Matarást: Hvað eldar Eva Laufey fyrir ástina?

Fjölmiðla- og matreiðslukonan Eva Laufey Kjaran elskar að gleðja fólkið í kringum sig með góðum mat. Því er ekki úr vegi að fá Evu til að deila með Makamálum hvað það er sem helst gleður bragðlauka maka hennar heima við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×