Seldar til bandarísks fjárfestingarsjóðs með milligöngu Icelease Atli Ísleifsson skrifar 8. október 2020 13:05 Boeing 757-200 vél Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Vísir/Vilhelm
Við sölu á þremur Boeing 757-200 vélum gekk Icelandair að lokum til samninga við Icelease ehf. fyrir hönd fjárfestingarsjóðs á sviði flugvélaviðskipta í Delaware í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í svari Icelandair við fyrirspurn fréttastofu. Sjóðurinn sem um ræðir er í meirihlutaeigu Corrum Capital Management. Fram kom í gær að vélarnar þrjár hafi verið seldar fyrir alls um 2,9 milljarða króna. Þar sagði jafnframt að stefnt væri að því að ganga endanlega frá samningum um söluna á næstu vikum. Tvær vélanna voru framleiddar árið 1994 og ein árið 2000, en eftir afhendingu stendur til að breyta vélunum úr farþegaflugvélum yfir í fraktvélar. Var salan sögð í samræmi við áætlun Icelandair um að fækka Boeing 757 vélum í flugflota félagsins á næstu árum. Greint var frá því á Vísi í morgun að Icelandair hafi sömuleiðis ákveðið að senda fjórar af Boeing 757 þotum sínum í niðurrif á næstu vikum. Hafi fyrstu vélinni verið flogið frá Keflavíkurflugvelli nú fyrir hádegi til Kansas í Bandaríkjunum í þessu skyni. Icelease er íslenskt félag sem sérhæfir sig í flugvélaviðskiptum á alþjóðlegum markaði.
Fréttir af flugi Icelandair Tengdar fréttir Fjórar Boeing 757 þotur Icelandair sendar í niðurrif á næstu vikum Icelandair hefur ákveðið að senda fjórar af Boeing 757 þotum sínum í niðurrif á næstu vikum. Var fyrstu vélinni flogið frá Keflavíkurflugvelli nú fyrir hádegi til Kansas í Bandaríkjunum í þessu skyni. 8. október 2020 10:08 Icelandair selur þrjár þotur fyrir 2,9 milljarða Icelandair hefur náð samkomulagi um sölu á þremur Boeing 757-200 flugvélum félagsins fyrir alls um 2,9 milljarða íslenskra króna. 7. október 2020 22:26 Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira
Fjórar Boeing 757 þotur Icelandair sendar í niðurrif á næstu vikum Icelandair hefur ákveðið að senda fjórar af Boeing 757 þotum sínum í niðurrif á næstu vikum. Var fyrstu vélinni flogið frá Keflavíkurflugvelli nú fyrir hádegi til Kansas í Bandaríkjunum í þessu skyni. 8. október 2020 10:08
Icelandair selur þrjár þotur fyrir 2,9 milljarða Icelandair hefur náð samkomulagi um sölu á þremur Boeing 757-200 flugvélum félagsins fyrir alls um 2,9 milljarða íslenskra króna. 7. október 2020 22:26