Innlent

Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Hlíðunum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Slökkvilið af öllum stöðvum höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna eldsins, sem reyndist loga í blómaskreytingu. Mynd er úr safni.
Slökkvilið af öllum stöðvum höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna eldsins, sem reyndist loga í blómaskreytingu. Mynd er úr safni. Vísir/vilhelm

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út nú skömmu eftir hádegi eftir að tilkynnt var um eld í íbúð í Hlíðahverfi í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins reyndist hafa kviknað í blómaskreytingu, sem búið er að fjarlægja úr íbúðinni.

Reykræsting stendur nú yfir. Ekki fengust upplýsingar um það hvort einhver hafi verið í íbúðinni þegar eldurinn kom upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×